Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1996, Page 77

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1996, Page 77
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 77 Helga Helgadóttir tekur við heiðursmerki Sjómannadagsins úr hendi Péturs Sigurðs- sonar árið 1989, en bóndi hennar var þá staddur á hafi úti. son pokamaður sem rakst á kopp á spilinu og fór úr axlarliðnum. Aðrir hlutu minni meiðsl. Margan hefur furðað á að við skyldum ekki heyra einhverja ógur- lega sprengingu þegar skipið rakst á tundurduflið og kann ég ekki skýr- ingu á því. En öflug sprenging var þetta eigi að síður og kann ég að greina frá ljósu dæmi þess: Meðal áhafnarinnar var vestfirskur maður að nafni Hjálmar. Hann var að setja rópinn í að aftan þegar sprengingin varð og við það kom slíkur halli á skipið að hann hraut útbyrðis — en skaut innbyrðis aftur um leið og skip- ið rétti sig. Þetta er satt, svo ótrúlega sem það kann að hljóma.“ Nýtt skiprúm eftir tvo daga „Ekki liðu nema tveir dagar frá því ég kom í bæinn eftir að Fylkir sökk þar til ég hafði ráðið mig á nýtt skip. Var það togarinn Júlí sem fórst í Ný- fundnalandsveðrinu mikla árið 1959. Ekki er ætlun mín að styggja nokk- urn mann þótt ég segi að ekki hafi ég gert meira glappaskot um dagana en að ráða mig þar um borð. Því olli sú óskaplega sóknarharka sem á Júlí tíðkaðist. Man ég að eitt sinn vorum við einskipa að veiðum í fjóra sólar- hringa í ófæru veðri fyrir vestan land. Við vorum jafnan tveir á trollvakt og vorum við eitt sinn santan á vaktinni ég og sá þjóðkunni Markús Þorgeirs- son sent björgunarnetið „Markús“ er kennt við. Þar sem Markúsi var ætlað að slá úr notaði ég tækifærið og hugð- ist fara og fá mér að borða. Ákvað ég að vera fljótur að borða og reyna síðan að komast fram í án þess að blotna, enda var vaktin búin og ég ætlaði í koju. En það stóðst á endum að þegar trollið kemurupp — eníþvívarmik- ill fiskur — slitnaði afturrópurinn og tók fyrir vikið tók þrjá klukkutíma að taka trollið. Meðan á því brasi stóð kom sjór á skipið nteð þeim afleið- ingum að sá sem stóð við framvant- inn í pokapontunni við talíuna, sem pokinn er tekinn inn á, tókst á loft og flaug yfir endilangt skipið. Varð hon- um það fyrir að hann greip um strekktan gilsinn og féll þaðan niður á spilkoppinn og meiddist talsvert. í þessu sama ólagi skorðaðist stýri- maðurinn uppi við spilið og taldi sig hafa rifbeinsbrotnað, sem til allrar hamingju reyndist þó ekki vera. En ekki var slegið slöku við og þegar það sem í trollinu var hafði náðst inn reyndust það vera um 30 tonn. Ekki var tekið að gera að fiskinum við svo búið heldur strengt yfir hann net og þar með siglt í var. Segir það sína sögu að meðan við vorum á innsigl- ingunni eftir þessa fjögurra sólar- hringa útiveru mættum við öðrum togurum sem loks þá voru að halda á miðin. Strax og í var kom var tekið að gera að aflanum og dytta að því sem úrskeiðis hafði farið í veðurhamnum og síðan haldið út á ný. Skyldi siglt til Bremerhafen og stefnan tekin norð- ur fyrir land í vonskuveðri. En ekki var áhöfninni ætlað að sitja auðum höndum heldur vorum við látnir vera úti á dekkinu við að splæsa grandara og annað dót. Man ég sérstaklega eftir því að þegar siglt var fyrir Langanes mátti heita að bakborðs- gálginn væri nær stöðugt í kafi. Var tækifærið notað þegar siglt var í gegnum Færeyjar til þess að gera við það sem úr lagi hafði færst í sjó- gangnum. Sem dæmi má nefna að um helmingur hlífðarborðanna í pontunni hafði rifnað upp í sjóunum. Á Júlí reyndi ég þá hörðustu sjó- sókn sem ég hef haft reynslu af um dagana.“ Fundin „Fylkismið“ „Ég var á Júlí fram í janúar 1957, en þá fór ég á togarann Egil Skalla- grímsson og var á honum fram á vor, eða uns mér bauðst pláss á nýjum Fylki sem þá kom til landsins. Á Fylki unnum við þau afrek að við fundum hin svonefndu „Fylkismið" við Grænland og einnig Nýfundna- landsmiðin árið 1958. Þar var oft fisk- að mikið og man ég eftir þrem túrum sem við fórurn á þessa bugt og kom- um að landi með ein 330 tonn í hvert skipti. Á 33 dögum munum við hafa veitt 930 tonn alls. Þarna var ég allt til ársins 1964 þegar togaraverkafall stóð fyrir dyr- um, en þá fór ég á vélbátinn Sigfús Bergmann frá Grindavík. Á Sigfúsi Bergmann var ég svo allt til þess tíma að síldin brást. Stóð þá til að lækka síldarverðið um 24% og sagði ég þá við útgerðarmanninn að ekki litist
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.