Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1996, Page 82

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1996, Page 82
82 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ Mestu herskip sjóvelda Evrópu á 17. öld voru erigin smásmíði. Hér má líta eitt skipa danska flotans á velmektardögum Kristjáns IV. hefðu reiðararnir þar ei síður gagn af, því sagt væri að íslenskir fengju dönskum matinn, en héldi eftir bein- unum. Hann spyr mig h' 't ei svo væri. En ég kvað satt vei .1 a> Janskir hefðu bolina en íslenskir höfðunum eftir héldu. Margt fleira var um þessa lands höndlan og háttarlag ríkra og fá- tækra talað, en ég ansaði fáu til. En svo var að merkja að kóngur væri margs vís orðinn hvernig hér til gengi og spurðist fyrir um falsaða vöru danskra, hvort satt væri sem þeir jafnan um knurruðu, þeir eð hér byggi, enþó kæmi enginn héðan með skjallega áklögun þar yfir, hvað hon- um mjög þótti, óskandi að Island væri sér svo nálægt sem þá var Nor- egur. Eg segi kóngi að einn íslenskur stúdent væri þann tíma í Kaupin- hafn, Þorlákur Þorkelsson að nafni frá Hólum, sem þríslags próf hefði til sýnis. Kóngur gladdist við og bað mig að áfýsa að hann þau fyrir sér til sýnis léti, svo hann þar um eitthvað glögglega fregna fengi. Og svo að þessu samtali í það sinn öllu enduðu, lét kóngur kalla á sinn eigin víntapp- ara, M. Christian Skammelsson, og bífalaði honum eitt 12 marka vín- staup okkur að afhenda, og að því meðteknu gafst okkur burtfararleyfi aftur þaðan. Albert Skiel áfýsti kóng héðan fólk að útskrifa. Kóngur kvað land þetta ei fólkríkt vera og bændur ei missa mega. Upp frá þessu ávarpaði kóngur mig þrávallt með ljúflegu ávarpi, hvar hann sá mig.“ Konunglegu borðsilfri fleygt í sjóinn! „Síðan fengum vér suðaustanvind norður með Noregi, allt til þess að vér komum í Fleckerey. Þar kom kóngur á land að umskoða, hvað honum virtist, og hinir aðrir herrar með honum, og svo ferðaðist hann með þeim á þann næsta prestagarð, er þar lá við höfnina, og svo út til skipanna um kvöldið og svo aftur að morgni til heimferðar. Ei leist kóngi hentugt þar blokkhús að byggja láta. Sá atburður skeði á heimreisunni, að nær kóngur vildi kvöldmáltíð halda, að vantaði allt borðsilfrið, en kóngsins vaktari hafði gleymt silfrið að heimta eftir miðdagsmáltíðina. Þá gjörðist mikill ókyrrleiki í skipinu af þvílíku tilfelli, og voru þá allir upp á þilfar kallaðir og lykill sérhvers manns heimtur að öllum hirslum, og var ég þá sem fleiri stórlega uggandi að hefði svo mátt til bera að nokkur óráðvandur hefði mátt koma því á veitur frómra manna. Þessi rannsókn var gjörð af prófoss og hans 4 svein- um. Einn bátsmaður, Rasmus að nafni, gekk til skipherrans og gaf honum heimuglega að skilja að á sama degi, stund eftir máltíð, hefði úr fötu gegnum vatnsportið, ein- hverju hringlandi hellt verið. Það kom fyrir kóng. En sá, sem gjört hafði, hét Jón og var nýlega kominn í kóngsins þjónustu og var ættaður neðarlega úr Noregi — og eru í fyrstu kallaðir Grábeinar. Þessi maður var léðurkóngsinsmatgjörðarmanni, M. Christian, sá eð hafði undir sér 11 sveina. Senn var hann fyrir kóng kallaður og með stórri hræðslu varp- aði hann sér flötum fyrir kóng og meðkenndist sér það með óvilja verið hafa, og hefði hann þess ei gáð, því vatnið hefði gruggugt verið. Kóngur brosti við og vorkynnti manninum og kvað hann fávísan og fátækan vera og sagði hann skyldi þjóna eitt ár þar fyrir upp á hólmin- um. Var svo þar ei meir um talað.“ Dreginn „kattarstrjúpi“ „Einn sunnudag á heimleiðinni var byrleysi, og eftir predikun og máltíð lét kóngur allt fólkið upp kalla á þiljur og bað það eitthvað til gam- ans upp að finna. Kóngur helst bað, að einhverjir drægi kattastrjúpa, er svo kallast. En þeim leik er svo varið að þeir bregða snæri aftur fyrir hvors hnakka og dragast svo hart á hnjám og höndum sem megna, og er með krít merki skrifað yfir um þvert þil- far, yfir hvert hvor keppist öðrum að kippa. Þessi Jón, sem silfrinu hafði úthellt, var upphvattur þennan leik að hefja. Hann var stór maður og geysilega sterkur. Honum var valinn einn af fólkinu, fyrst af bátsmönn- um, til leikbróður sásterkasti, ogsíð- an 4 aðrir, hverja alla hann karsklega yfirvann. En kóngur ntiðlaði honum við hvern mann hálfri mörk, sem er
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.