Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1996, Page 86

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1996, Page 86
86 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ Katrín mikla, keisaraynja af Rússlandi. „ Vor kœra keisarainna heldur mikið meir með þeim gemeina manni en hennar officere", segirÁrni, sem dáði Katrínu og Rússa mikið og einlœglega. Rússar voru kvensamir þar þeir sáu tækifæri „Eftir þetta komum vér í plátz sem heitir Portenhom (Port Mahon). Petta pláts heyrði þeim engelsku til. Þar var hin besta höfn og gott kastill. Vér lágum þar lengi og repareruðum vort skip er hafði fengið skaða í þeim spanska sjó. Þaðan sigldi vor Asia frá oss og admiral Arf, er þaug tvö skip fóru nú lengra inn í hafið til þeirra tyrknesku grensa. Vér vorum í þessu plátzi langt fram yfir jól. Þegar vér vorum nú búnir að gjöra við skipið, fengum vér lof að fara í land. Eg hafði einn hollenskan dúkat og eigi vissa eg hvað fyrir hann fékk, því þar voru allir hlutir so dýrir að vér feng- um ætíð lítið fyrir peninga. Eg keypti þar máltíð mat, en ég mátti betala fyrir hana, eg þori að segja yfir 3 mk. danske. Eg lá í rúmi eins soldats er vakt hafði, en hann hafði visiterað mína vasa um nóttina, en eg hafði þá forvarað í mínum hálsklút, so hann fann þá ei. Mínir kammerater höfðu slegist um nóttina og einn þeirra hafði brugt hníf. Voru þar fyrir straffaðir þegar um borð komu. Þeir stálu tóbaki frá mér. Eg fékk það aldrei síðan. Þeir dönsku eru aldrei trúir sínum eigin lagsmönnum, því síður oss íslenskum, sem þeir vilja gjarna hafa fyrir sína þénara. Eru mikið ótrúir í orðum og verkum, so ég hef aldrei fengið nokkurn trúskap hjá danskri nasjón. Oft gengu Rússar í land, en þar urðu engin klögumál upp á þá í Portenhom. En danskir urðu oft straffaðir, bæði fyrir klamm- erí og þjófnað. Eg hitti mig vel á öllum stöðum. Rússar voru kven- samir þar þeir sáu tækifæri. Nú fór- um vér frá þessari ey. Þar voru tveir býir á þessu plátsi, allt engelskt fólk, þó fátt frá Vallandi (Ítalíu), so sem frá Livorno og þeim næstu plátsum þar um kring. Og að teknu tækifæri fórum vér inn eftir hafinu.“ Gjörðu frið við Tyrkjann „Eg gleymdi að fortelja að í Por- tenhom voru tvö dönsk orlogsskip, sem var Prins Frederik, er færði kommandör Becker, og orlogsskipið Slésvík, er voru af þeim átta er vor kóngur út sendi að inntaka Algeir. En þegar þeir höfðu út skotið púðri og kúlum, er ei kunnu fanga staðinn, því þeir lágu so langt úti á sjónum, að ei kunnu þessir eða Tyrkinn að ná með skotum hver til annars, — fóru síðan í land og gjörðu frið við Tyrkj- ann, hvar af þeir komust í slétt umtal hjá öllu fólki, að sínum kóngi so ótrú- ir væru og ei vildu voga sér í hættu fyrir hann og föðurlandið. Matrósar voru hugprúðir og vildu fegnir hafa slegist með Tyrkjann, en yfirvöldin voru hrædd að voga sér í hættu. Nú þegar frið gjört höfðu urðu þeir so slæmir við fólkið að plága það með erfiði og litla fæðu, að þar kom stór sjúkdómur í skipið, so þar voru yfir tvö hundruð manns í húsi einu, er var byggt á einnri ey við Portenhom. Þar komu þau rússisku yfirvöld og sáu upp á þessa menn, sem bæði höfðu lítið að eta og sjúk- dóm í meira lagi. Fjöldi allur dóu þar þegar vér vorum þar. Þeir rússisku
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.