Sjómannadagsblaðið

Årgang

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1996, Side 87

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1996, Side 87
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 87 officeres eftir spurðu hvert sá danski kóngur hefði ei annað að gefa sínum matrósum en vatn og grástein og sögðu þeir skyldu koma upp á sín skip og yfir líta sitt fólk, hvert so illa út sæi sem þeirra. Og vor dönsku yfirvöld sáu oss og kenndu oss ei. Vér vorum bæði feitir og vel til fara. Það var ei oft að sjúkir væru hjá oss yfir tvo eður þrjá í mesta lagi af 700 manns á vorri heilu reisu. Eg tala ei um þegar komum í Tyrkeríið og komum í lag með vora mótstöðu- menn, sem síðar mun sagt verða.“ Á Möltu „Vér héldum nú lengi ferðinni fram, til þess vér komum til Malta og sendum boð undan oss, hvert ei mættum þar inn koma og kaupa af þeim það vér með þyrftum. Oss var svarað, ef vér brúkuðum danskt flag, værum vér velkomnir þangað að inn- koma, en ei með það rússiska flag. Maletesser voru mikið skikkanlegir mót oss, því sá danski kóngur hefur verið þeirra skyssherra (verndari) í gömlum tíðum. Þessi ey er sú er sá heilagi Paulus leið skipbrot á ferð- inni til Róm, sem kann sjá í þeirri heilögu skrift. Þar er jafnan brim og óhreinn sjór og ei utan eitt innhlaup. Þessi ey er ávaxtarsöm af öllum jarð- arinnar ávexti, sérdeilis af hunangi. Er og lítil vexti, mér virtist hér um fimmti partur af þingmannaleið. Þar var og ei utan einn kaupstaður, er var lítill, en þó vel byggður. Kastil) á báðar síður, þegar inn komum á höfnina. Þar keyptum vér eitt grátt naut. Eg hef aldrei séð svo stórt naut sem það var. Ei var það so mikillega feitt sem það var stórt. Var og mjög dýrt, mig minnir 25 rd. Þeirra brauð var al' hveiti, ganske sætt. Einn pott- ur vín kostaði þar þrjá skildinga, er sama slags vín kostar í Kaupinhöfn einn sléttan dal. Allir ávextir voru eftir þessum prís. Vér lágum þar í fimm daga. Eg var þar einu sinni í landi og drakk þar vín og át ávexti so mikla sem vildi fyrir átta skildinga, er eg ei kunni fá í Kaupinhöfn fyrir 2 rd. Flesk og ket var mikið dýrt. Þessi ey var slétt yfirferðar. Þetta fólk gjörir ei frið við Tyrkjann, heldur er þar ævarandi ófriður og barátta, og þegar þeir sjá að Tyrkinn vill og kann þá yfirvinna, koma þeir eld í þeirra púðurhús á skipinu, so það flýgur í loftið. Því þeir vita að ef verða skyldu herteknir af honum, er þeim engin lausn væntanleg, því Tyrkinn vill gjarna hafa frið við þá, ef fá kynni. Þessi þjóð er katoliker, eru mjög harðir viðureignar og eru alltíð á flakki, stela og myrða þá tyrknesku og eru hönum í öllu mótsnúnir." Einn loss til þeirra grekisku eylanda „Þegar þaðan fórum fengum vér einn loss með oss er skyldi vísa oss veginn til þeirra grekisku eylanda, því hvar vér komum í þeirra grenser voru þeir oss undirgefnir, fyrir hverra skuld að stríðið við tyrkneska hafði sín upptök, því Rússar og Grekar eru sömu trúarbragða. Þeir klöguðu fyrir Majesteten af Rúss- land að Tyrkinn vildi þá yfirfalla, skáru skeggið af þeirra prestum og drápu fólkið. En það hendir sig oft að einn grískur tekur tyrkneska konu og einn Tyrki tekur grekiska konu. Þó kunna þeir aldrei að forlíkast, því Grekar hafa ekkert yfirvald utan Tyrkjann, er þá undiroka með skatt og ólöglegar tributer (álögur). Þegar vér þar inn komum hafði þetta stríð yfir staðið í þrjú ár og höfðu Rússar haft alltíð sigur, en fjölda fólks höfðu þó misst, og flestir Tyrkjar frá þess- um eylöndum voru í land drifnir. Fyrr bjuggu þeir saman, þó ei forlík- ast kynnu. Þegar vér komum nú í þessar eyjar hvar Grekar í bjuggu, voru þeir oss undirgefnir í öllu. Þeir komu til okk- ar með mjólk og ost, brauð og ket, olíu, er þeir brúka að steikja fisk er þeir kalla ríba, er mikið smár vexti og sætur að smekk. Þeir steikja og þeirra brauð í þessari olíu. Þeir komu með mjólk, bæði kokkaða og ókokk- aða. Vor prestur messaði í þeirra kirkjum, sem voru sérdeilis vel byggðar með artugu málverki so röru að ei hef ég séð betra. Alla sunnu- daga var so fullt í kirkjunni að fjórar, fimm raðir stóðu fyrir utan kirkju- dyrnar. Allir fóru Rússar í góðu skikki að þessum tíðagjörðum, voru títt að signa sig og bukta.“ SKOÐUN OG VIÐGERÐIR GÚMMÍBÁTA ALLT ÁRIÐ Önnumst einnig viðgerðir á flot- og BJÖRGUNARBÚNINGUM. GÚMMÍBÁTAÞJÓNUSTAN Eyjarslóð 9 • Örfirisey Sími: 551 4010
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Sjómannadagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.