Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1996, Síða 102

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1996, Síða 102
102 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ Víkingasafnið í Bygdöy — eftir Jón Kr. Gunnarsson Ekki er ólíklegt að íslendingar séu ferðaglaðasta þjóð í heimi miðað við fólksfjölda. Auk ferðalaga innanlands sækir mik- ill fjöldi út í heim. Margir spara til þess að geta síðan veitt sér utan- landsferð síðar, en aðrir tefla á það tæpasta með krítarkortið og borga eftir á. Auðvitað er það veðurfarið á okkar kalda og vindasama Fróni, en einnig er það verðlagið í ýmsum suð- lægari löndum. Löngun í sól og hita ræður miklu hjá fjölda fólks þegar það velur sér ákvörðunarstað í or- lofsferð. Ferðamátinn og ferðaleiðir hafa breyst mikið. Áður lágu flestar leiðir í gegnum Kaupmannahöfn og til Norð- urlandanna. Tengslin við norræna frændur eru sterk, en nú skiptir sam- eiginlegur uppruni ekki lengur máli þegar ferðaáætlanir eru gerðar. Sólin, hitinn og verðlagið ræður ferðinni. Sameiginleg arfleifð Þó að Norðurlöndin hafi að miklu leyti orðið úrleiðis í sumarleyfisferð- um íslendinga á undanförnum árum er ekki þar með sagt að við eigum ekki þangað margt að sækja. Sameig- inleg arfleifð er enn í fullu gildi. Saga Norðurlandanna er jafnframt hluti af okkar eigin sögu. Á síðstliðnu sumri átti ég erindi til Noregs og í framhaldi gafst mér kost- ur á að líta í kring um mig og heim- sækja áhugaverða staði. Ferðalög og grúsk fer oft vel saman. Ég hef oft áður notað tækifærið og heimsótt Víkingaskipasafnið á Bygdö við Oslo. Ég dáist að þessum gömlu skipum sem eru frá svipuðum tíma og norrænir menn, aðallega frá vest- urströnd Noregs, lögðu á haf út til að nema nýtt land. Handbragð og hönn- un ber verkmenningu gott vitni. Án þekkingar á skipasmíði og siglingum hefði landnám íslands ekki verið mögulegt. Landnám íslands er eitt af undrum veraldar. Hundruðum saman kaus fólk að flytjast á brott frá Noregi og setjast að í ókunnu landi. Það hlýtur að hafa verið mikið fyrirtæki að flytja á milli landa, oft á tíðum um úfið haf, með talsvert af búsmala og eitthvað af brýnustu búslóð. Þó að innan- landsófriður í Noregi hafi knúið menn til farar, þá þurfti mikið áræði til. Skipakostur þurfti að vera mikill og góður.“ Minjar af hafsbotni „íslendingar eiga fátt minja frá fornum tíma og ekkert sem varðar siglingasöguna. Norðmenn og Danir eru hins vegar svo lánsamir að hafa eignast skip frá þessum tíma. Danir fengu sín skip af hafsbotni í Hróars- keldufirði. Þau eru fimm talsins af mismunandi stærð og gerðum. Það stærsta þeirra er knörr sem var út- hafsskip á fornum tíma. Það var hins vegar mjög illa farið og rúið öllum búnaði enda hafði því verið sökkt ásamt minni skipunum til þess að loka innsiglingunni til hinnar fornu Hróarskeldu. Þessi skip eru til sýnis í glæsilegu safni í Hróarskeldu.“ Fimm skip við Oslófjörðinn „Norðmenn eignuðust sín skip hins vegar við uppgröft á fornum haugum, sem voru höfðingjagrafir. Þau sýna og sanna á hve háu stigi skipa- og bátasmíði var á Norður- löndum til forna. Efniviður til skipa- smíða var að sjálfsögðu nægur. Að minnsta kosti fimm forn skip hafa verið grafin upp í og við Osló- fjörðinn. Tvö af þessum skipum, Gauksstaðaskipið og Ásubergsskip- ið eru sérstaklega athyglisverð vegna þess hversu vel þau hafa varðveist og einnig vegna þess búnaðar sem í þeim var. I ljós kom mikið af áhöld- um og síðast en ekki síst listmunir eins og útskurður. Seglabúnað vant- ar hins vegar svo að segja alveg, svo að þó ljósi sé varpað á þróaða skipa- smíði er ýmsum spurningum ósvarað um sjálfar siglingarnar. En trúnni á nýtt líf eftir jarðneskan dauða eigum við að þakka að við nú skulum geta litið augum þessi fornu skip. Það þótti brýnt að búa látna höfðinga vel úr garði á leiðinni yfir móðuna miklu. Á nýjum og ókunnum leiðum skyldu allir vera sannfærðir um að þarna væru höfðingjar á ferð, en ekki hversdagsmenn. Fornleifafundir Dana og ekki síst Norðmanna eru mikilvægir fyrir okkur íslendinga, því þeir skýra upp- haf íslandssögunnar og þá staðreynd að landnám Islands var tæknilega mögulegt. Þetta er fróðlegt að skoða
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Sjómannadagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.