Blanda - 01.01.1923, Page 147
141
og harðlagt yfir Hestfjörð. Þykist hann vera á ferð
yfir isinn rétt fyrir innan tóptirnar á Kolbeinseyri;
þykist hann þá koma að vök, og þykist vita, að þar
hafi menn farið ofan í og drukknað, og þykir sór
verða mjög bylt við, en honum þótti íshjóm vera
yfir vökinni, en að þvi búnu vaknaði hann. Aðra nótt
siðar dreymdi Jón, að hann er enn á ferð, á sama
stað, og er þá is sem hið fyrra sinn. Þykist hann
nú sjá aðra vök nýja; hún var töluvert utar. Þarna
þykist Jón vita vissulega, að hann hafi mist vini sína
ofan i. Þykist hann nú gráta af harmi yfir þessu og
ganga frá vökinni; rasar hann þá og rekur niður aðra
hönd siua og þykist fá í hana sáran verk, og hún
verða máttlaus, en við það vaknar haun. Ekki hafði
Jón neina hugmynd um, hvað draumar þessir mundu
þýða, að því sinni, en undir hátíðar um veturinn, ept-
ir það Jón frétti lát Búa sonar sins, hélt Jón að vak-
irnar mundubáðar hafa átt að þýða skiptapa tvo, sem þá
skeðu frá því um haustið. Nóttina fyrir þann 19. des.
1907, þann sama dag, sem Búi sonur Jóns og Ingibjargar
drukknaði, dreymir Ingibjörgu konu Jóns, að þeir
hræður Björn og Búi eru að lenda tveir á bát undir
hleinarnar á Grjóthlaðinu í brimi; þykir henni þar
hvolfa bátnum; þykist hún þegar ná í Björn og draga
hann upp á klappirnar, en hún sór að báran sogar
Búa alt af fram, þar til hún sá hann ekki framar; en
þann sama morgun, er Búi drukknaði um daginn, fór
Björn út á ísafjörð, með Þórði Kristjánssyni fráFæti;
þá var Sigurður bóndi á Fæti staddur út á ísafjarðar-
kaupstað og fékk af Þórði að draga sig aptan í mótor-
bát hans inn eptir alla leið, og var bátur Sigurðar
aptan í honum, og í honum þeir Björn og Sigurður
tveir einir. Kuldi var um kvöldið ogfrost; útsynning-
Ur var á og snjóél mikil í rökkrinu. Nú stýrði Björn
leDgi bátnum og var orðið mjög kalt. Tók þá