Blanda - 01.01.1923, Page 251
243
Bréf frá Magnúsi lækni Stephensen til
Jóns iandlæknis Hjaltaiíns um Vest-
mannaeyjar fyrir nær 60 árum.
Vestmannaeyjum 24. Sept. 1864.
Háttvirti herra jústizráð.
Úr þessum asnakjálka ætla eg mér til gamans að
hripa yður fáeinar linur. Préttirnar eru héðan eingar,
eins og lög gera ráð íyrir, þvi hér er ekki hugsað um
annað en íýl og lunda, og svo að sóðast áfram eins
og bezt má. Já, svíneríið hórna, það tekur í hnúkana,
og að dónarnir skuli halda heilsu í þessum kofum og
ódaun, það geingur yfir mig; forirnar eru rótt við bæjar-
dyrnar, og fýlan1) úr þeim leggur svo inn i bæinn,
sem undir er íullur af íýladaun og allskonar óþverra.
En þarna hýrast þeir i þessum kompura, og líður vel,
nema hvað lúsin ónáðar þá. Ef maður kemur nærri
þeim, á maður á hættu að fá þesskonar fónað, og eg
fief auðgazt þannig, eða róttara sagt feiugið þær í
fionorar2). Eg er búiun að biðja sýslumanninn að skipa
þeirn að færa forirnar, en hvort þeir hlýða því, er nú
eptir að vita, því eingin eru hór lög um óþverraskap
°g þess háttar, því síður um, að þeir ekki megi búa
i hvaða kompu, sem er. Einn býr hér i gömlu hænsna-
húsi, og þykir veglegt.
Af mór er ekki annað að segja en heilsan er hin
sama, þó ekki verri, og mór dauðleiðist innan um
þetta, og heimska og indbildska kaupmenn, sem drekka
°g ráða hér öllu, því allur helmingur bænda er svo
skuldugur, að þeir hafa pantsett alt sitt til þeirra, og
lifa svo á þeirra náð.
Af því eg er ungur hóraðslæknir, og hér við em-
1) Svo.
2) þ. e. i lækningalaun.
16*