Blanda - 01.01.1923, Side 359
351
tæka landi til látandi; hefur hér stór sótt gengið þetta
suraar, og allmörg guðsbörn heimkölluð verið, hverra
sálir guð eilífur gleðji 1 síuum móðurfaðmi, og gefi
oss, sem eptir lifum, kristilega hér við að skiljast. Eg
veit þér spurt hafið af þeim skelmerum, sem fyrir
sunnan komu í Grindavík í sumar og hvern skaða
þeir þar gerðu, því gildir mig þar ei um að skrifa.
Siðau komu þeir á þrennum skipum að Vestmanna-
eyjum, og komu þessir forræðar(ar) þar inn í einn leyni-
vog á bak við eyjarnar á þreraur bátum; höfðu þar
verið 500 fólks á eyjunum, þá þeir komu, en þá f burt
fóru 60. Tóku þeir hann séra Jón og huggu undan hon-
um kálfana, skáru báðumeginn út úr munninum og tung-
una; síðast höfðu þeir höggvið af honum höfuðið; svo
og tóku þeir þar annan prest séra Óiaf að nafni; álíka
(heyri) eg1) sagt, að þeirhafi með hann farið. En það fólkið^
sem þeir vildu ei með sér hafa, deyddu þeir og drápu.
Er mælt, að þá islenzku sé vel að varast, sem þeir
taka, því þeir skulu verða þúsundfalt verri en þeir.
í'annst á eyjunum, þá þeir voru í burtu, iijo fólks
dautt, en hitt hafa þeir með sér tekið. Komust þeir
dönsku undan á bát í land, en skipið tóku þeir. Komu
hér að aðrir fyrir austan í Djúpavog, og tóku þar
margt fólk; einninn höfðu þeir gert þar mikinn skaða
á góssi og peningum manna. Er sú en danska þjóðin
mjög hrædd um sig, sera eru kaupmannaförin. Mælt
er, að þessi skip séu 10 f sjónum, og er sagt, að 5
skulu vera send at’ páfanum, en önnur 5 af þeim
spanska kongi; hvort það er satt eður ekki, kann eg
ei að vita. Svo er og haft eptir þessum forræðurum,
að vilji vera betur útbúnir annað ár. Þykir mór ráð-
legt, elsku vin, að séuð á því skipi (ef hingað siglið
að ári), sem nokkuð er útbúið, annaðhvort með höfuðs-
1) Svo.