Eimreiðin - 01.05.1967, Blaðsíða 73
JEPPE AAKJÆR OG GUÐMUNDUR JNGI
161
háttuð þátttaka skálds í lífi fólksins orðið sem tvíeggjað vopn, ýmist
reynzt því uppspretta andagiftar, kveikur söngs og sögu, eða þá
gerzt því fjötur um fót, svo að flug þess daprist, allt eftir ástæðum.
Jeppe Aakjær varð hún sem tær og sístreymin lind á Jótlands-
heiðum, Guðmundi Inga eins og söngrænn lækur í vestfirzkri fjalla-
hlíð.
Ég hef ekki hirt um að fella listrænan dóm yfir ljóð Guðmundar
Inga, heldur benda á sérstöðu hans sem skálds og hvar upptök
hennar eru. Að minni hyggju er hann enn á þroskabraut. Það sýna
hezt síðustu bækur hans, „Sóldögg“, er út kom 1958, og „Sólborgir",
ferðakvæði hans frá Austurlöndum (1963), þar sem hann nemur
ný lönd í kveðskap sínum.
í frábærri grein, sem Richardt Gandrup reit urn Jeppe Aakjær
og út kom í safnritinu „Danske Digtere i det 20. Aarhundrede"
árið 1951, segir, að „Rugens Sange“ hafi vakið einróma hrifningu
allra ritdómara og, það sem meira var, safnað um Jeppe Aakjær
meginfjölda hins lesandi fólks, svo að eftir það hafi hann getað
lostnað við öll þreytandi skyldustörf.
Tekjurnar af ljóðum Guðmundar Inga munu ekki hafa létt af
honum þreytandi skyldustörfum, enda spurning, hvort hann liefði
kært sig um það, svo hugþekk sem þau virðast vera honurn. Hann
hefur víst aldrei verið lofaður einum rómi af þeim háu herrum,
sem dómarasætin skipa. En alþýðan, sem hann yrkir fyrst og fremst
um, hefur tekið verkum hans vel. Þeirn, sem hún veitir viðtöku,
er borgið. Dómi hennar verður ekki áfrýjað.
Helztu lieimildir:
F. J. Billeskov Jansen: Jeppe Aakjær, Dansk Litteraturhistorie, Politikens
Forlag 1966, Bind 3, bls. 498-505.
Richardt Gandrup: Jeppe Aakjær; Danske Digtere i det 20. Aarhundrede,
G. E. C. Gads l'orlag, Kh. 1951.
Harry Andersen: Jeppe Aakjær; Nordisk Tidskrift, Arg, 42, Háíte 8, 1966,
Stockholm, Seelig & Co.
Guðmundur Ingi Kristjánsson: Sólstafir, kvæði, Reykjavík, 1938.
— — — : Sólbráð, kvæði, Reykjavík, 1945.
— — — : Sóldögg, Reykjavík, 1958.
Jeppe Aakjær: Derude fra Kærene, Kjábenhavn, 1899.
— — : Fri Felt, Kjábenhavn, 1905.
— — : Rugens Sange og andre Digte, Kpbenhavn, 1906.
— — : Muld og Malm, K0benhavn, 1909.
11