Iðunn - 01.06.1886, Blaðsíða 37
tíjörn í (jerðum. 331
Enn þegar liann kom inn, kom hann ekki að
tómum kofunum.
]par voru tveir menn komnir, og sátu báðir að slátr-
diskum inni á rúmi.
Á móti þeim sátu þrjár af mæðgunum ; tvær inar
yngri sátu undir litlu systrum sínum.
Siggi, Kópi og móstrútótti hvolprinn lágu allir
uppi í fremra rúrninu.
»Er ekki kaffið ósköp ódýrt þar?» spurði ]por-
björg.
»Og nefndu ekki ósköpin», svaraði annar þeirra,
ei' við slátrdiskana sat, »það kostar þar þetta 10—12
aura pundið, ef maðr nennir ekki að sækjaþað sjálfr;
það sprettr þar um hagann, eins og berin heima á
íslandi, og það er auðgert, svona seinni part sum-
ars, að tína þar 20 pd á dag».
»Ó, það ermikið blessaðland, þangað vildi’ egværi
kominn, — Siggi, hlauptu fram og gáðu að katl-
inum».
»Guð hefir blessað þetta land með gjöfum sínum
vegna sinna trúuðu».
»Já, það er munr eða hérna, þar sem maðr hefir
ekki bita eða sopa ofan í sig nema með eftirgangs-
rnunum og illdeilum, þegar heilsan er farin».
»Já, guð hefir líka straffað þetta land, sakir þess
óguðlegleika, og þeir, sem ekki vilja verða hans
trúuðu og skírast, þeirra forlög munu verða eins og
segir hjá Jóhannem í hans opinberingabók: og
það fór eldr af himnum ofan og eyddi þeim, og
þeim var kastað lifandi í elddíkið, sem er helvíti, sem
logar af eldi og brennisteini».
»Og», sagði hann til viðbótar, »þá mun verða,