Iðunn - 01.06.1886, Blaðsíða 119
Pjetursldrkjan í Róm.
413
suður að Tjörn. Hugsi maður sjer 9 Reykjavíkur-
dómkirkjur hverja oían á aunari, að turninum
meðtöldum, þá næði efsti turninn samt ekki alveg
efst upp í hvelfinguna í Pjeturskirkjunni.
Ei maður setti Sívalaturn í Khöfn á mitt gólfið
undir hvelfinguuni, þar sem háaltarið stendur, og
svo bætti turninum á Pjeturskirkju í Khöfn of-
an á Sívalaturn, þá vantaði þó enn 17 fet til þess,
að þeir næðu upp undir lopt. það eru ekki miklar
ýkjur, sem stendur í einhverri danskri bók, að dóm-
kirkjan í Hróarskeldu gæti vel staðið úti í ein-
hverju horni á Pjeturskirkjunni, svo að ekki færi
mjög mikið fyrir. |>ó er eins og maður verði eigi þeg-
ar í stað var við þessa ógurlegu stærð. En hafi
niaður reikað um á ínarmaragólfinu, þessu feikna-
fiæmi; lagzt aptur á bak á brjóstriðið umhverfis
altarið og horft upp í þessa hvelfingu, sem þá sýn-
ist eins og lypta sjer hærra og hærra upp; staðið
við hliðina á hinum risavöxnu myndastoðum; eða
haft fyrir þvf að ganga upp riðið upp á þak kirkj-
unnar,—mörg lrundruð stig—þar sem erheill bær,
með gosbrunnum, kerrum og ösnum, og loks geng-
ið upp á hvelfinguna og horft yfir þetta mikla fjall
úr eintómum steini—þá fyrst fer maður smátt og
smátt að fá hugmynd um, hvílíkt ógurlegt tröll-
virki Pjeturskirkjan er, og verður manni þá óskilj-
anlegt, hvernig nokkur mannsheili hefir fengið djörf-
ung til að framleiða hugmyndina um slíkt feikna-
smíði og hvernig nokkur mennsk hönd hefir getað
fullgert það. það hafa á síðari árum verið reist
víða feiknamikil stórhýsi, t. d. heimssýningarhiisin
í Lundúnum, Vín og París. En þau eru ekki nema