Iðunn - 01.06.1886, Blaðsíða 134
428
C. St. A. Bille :
cago, var honum það mikið áhorfsmál, hvernig
það mundi ganga að fá hentug húsnæði fyrir alla
verkmennina, sem vóru eigi færri enn 2500. Chi-
cago er voldug borg, og munaði lítið um þessa við-
bót, enn hitt var auðsætt, að í jafnfjölmennri borg
yrði margir af verkmönnunum að fá húsnæði í marg-
gólfuðum húsum, þar sem áðr var allmjög á skipað,
og að þeim yrði oft örðugt að fá þar þrifaleg og
heilnæm húsakynni. Auk þess mundu verkmenn
verða þar háðir mörgum freistingum, svo sem of-
neyzlu áfengra drykkja, sem gerir engu minna tjón
í Ameríku og leiðir þar engu minni ógæfu yfir
eiustaka menn og heimili enn í vorri hálfu. Pull-
man tók það til bragðs, að reisa sérstaka borg
handa verksmiðjum sínutn og verkmönnum og búa
svo í haginn fyrir þá, að öllum illum áhrifum væri
burtu bægt, enn hver verkmaðr, hve fátækr sem
væri, gæti unað lífi sínu í rólegum og haganlegum
heimkynnum. |>essi ráð lýsa mannúð hans og
drenglyndi, enn hyggindi hatts og hagsýni var þar
samfara. Hann sá svo fyrir, að fé það er verja
átti til þessa fyrirtækis, mundi ávaxtast um 6 af
hundraði á ári hverju, og eru það ekki kallaðir háir
vextir í Ameríku, enn mestu þótti honum það
varða, að með þessu móti mundu verkmeunirnir
verða duglegri, verklægnari og ánægðari, mundu
láta sér annara um verk sín og fyrirtækið alt enn
venja er til, og mundu ekki uinsvifalaust hefja
róstur eða leggja niðr verk sitt eins og títt er um
verkmannaflokka. Pullman fer þá og velr sér
borgarstæði 18 enskar mílur frá Chicago; þar var
slétt og deiglent eins og víða þar í grend ; það er