Iðunn - 01.06.1886, Blaðsíða 140
434 C. St. A. Bille:
steinvegg á eina hliðina, sem jþakinn er frjólegum
vafningsjurtum.
jpegar komið er frá Chicago, fer lestin rétt fram
hjá þessum fagra garði og hinni tígulegu framhlið
verksmiðjunnar og turninum, sem er að baki henn-
ar, og nemr staðar á áfangastaðnum. Afangastaðr-
inn er ólíkr því sem venja er annarsstaðar. það
er ekki óvandað byrgi með rykugum og sótugum
biðsal og lélegum trébekkjum til að sitja á, heldr
er það fallegt hús og vandað að öllu. Skamt það-
an er gestahöllin »Hótel Plorence« við fagran völl
í borginni; á þeim velli skemta borgarbúar sér á
sumarkveldin, og hljóma þá raddir frá »orkestrinu«,
sem reist er á miðjum vellinum. Gestahöllin
er lítil, eftir því sem gerist í Ameríku, enn
með snildarlegum útbúnaði, engu síðri enn í hin-
um stærstu veitingahöllum, enn langtum þægilegri.
Umhverfis gestaskálann sjálfan eru smærri salir:
samkomusalr, stór og bjartr borðsalr, lestrarsalir
úr svörtum eikarviði, reykingarsalir lagðir saffíani,
knattborðssalir, skeggrakarastofa, sem er í öllum
hótellum, þvotta- og klæðalierbergi o. s. frv. Uppi
eru 75 herbergi, og skortir þar hvorki heitt eða
kalt vatn eftir vild; baðklefi og vatnsrennu-salerni
er áfast við hvert herbergi. 1 þessari gestahöll er
vistin svo góð, að margr mundi vinna til að búa
þar eingöngu sér til skemtunar. Sagt er að fæðið
só þar ágætt, enn sjálfsagt er bindindisreglu hald-
ið þar eins og annarsstaðar í borginni, því að það
eru lög í Pullman, að ekki má selja vínanda, vín
eða neina áfenga drykki. Borgarmönnum er ekki
bannað að kaupa vínföng annarsstaðar og hafa þau 1