Iðunn - 01.06.1886, Blaðsíða 57
Fundin Madeira.
351
ur skip sitt af dýrum, fuglurn, trjám og öðrum af~-
rakstri landsins. Aður en þeir gengu á skip, hlóðu
þeir altavi yfir leiði þeirra Róberts og Onnu ; þar var
síðan reist kirkja og stendur hún enn ; en yfir altar-
inu hangir þar litli sedrusviðarkrossinn, er stóð fyr-
ir framan legstein þeirra, þegar Sargó kom til eyjar-
innar. Nú er kirkja þessi í miðjum bænum Ma-
chico, er samnefndur er víkinni, þar sem Róbert
lenti og þeir fjelagar hans.
þegar þeir Sargó og Moralés komu heim til
Portúgals, var þeim vel fagnað, og sæmdi Jóhann
konungur þá heiðursmerkjum. Var eyjan síðan
kölluð Madeira (Viðey), og fjekk hún nafn af
skógi þeim, er þar var. Sendi konungur þangað
nýlendumenn og fjenað, og var Sargó fyrstur skip-
aður landstjóri þar. Vdtti þeim í fyrstu örðugt,
að rækta landið, því skógurinn varð seinunninn,
og tóku þeir því það ráð, að kveikja í skóginum,
og læsti elduriun sig fljótt út um hann, svo meira.
brann en þeir ætluðust til, og fengu þeir eigi stöðv-.
að eldinn, því hvergi var rjóður í skóginum, og
lijelt liann áfram að brenna í 7 ár; var eyjan þá
orðin nálega skóglaus. Síðan fluttu menn þangað vín-
við frá Krít og Sikiley og spratt hann þar ágætlega,
upp af öskunni; þaðan er komið hið nafnfræga.
Madeiravín. Nú er víuyrkja þar nærri þrotin
vegna sýki, sem lagzt hefir á vínviðinn; en aptur á
móti vex þar mi kaffi og sykurreyr og ber eyjar-.
skeggjum góðan arð.
(J. J. hefir |iýtt).