Ægir - 01.01.1938, Síða 15
Æ G I R
7
Frá Ólafsvík gengu 8 opnir vélbátar,
með 56 manna áhöfn, og er það 4 bátum
færra en árið áður. Haustvertíð var á-
gæt miðað við undanfarin ár. Hlutfalls-
lega hefir komið meiri afli á land i Ól-
afsvík, en í nokkurri annari verstöð i
Sunnlendingafjórðungi, ef miðað er við
árið á undan. Ársafli 193 smál. (58).
Vestfirðingafjórðung'ur.
Afialeysi var þar mjög mikið, bæði á
djúp- og grunnmiðum. í verstöðvunum
í kringum Djúp fiskaðist dável fjæri
bluta marzmánaðar, en einungis á dýpstu
miðum. Stærstu vélbátarnir frá fsafirði
stunduðu veiðar suður við Snæfellsnes
síðari liluta vertíðar og öfluðu sæmilega.
Vorvertíðin var mjög léleg. Um sumar-
málin var þó allgóður afli í Hesteyrar-
firði, en þessi afli kom eingöngu smá-
bátum að notum og bafði því smávægi-
leg ábrif á heildarafla fjórðungsins.
Yfir sumarmánuðina voru róðrar lítið
stundaðir, enda fóru allir bátar á síld-
veiðar, sem þær veiðar gátu stundað.
Nokkrir bátar stunduðu þó handfæra-
veiðar yfir sumartímann, og öfluðu þeir
vel í meðallagi, en tíðarfar var óhag-
stætt til sjósóknar. Haustafli var með
betra móti, einkum var ágætur afli i
Hnífsdal á jólaföstunni. Mikill hluti
haustaflans var seldur í ísfisktogara.
f Steingrimsfirði var ágætt aflaár.
Fyrri hluta vorsins og einnig á haust-
vertíðinni var uppgripaafli þar. í Vikum
vestra var einnig góður lieildarafli og
hefði sennilega orðið mun betri, ef ill-
viðri liefðu ekki hamlað sjósókn á haust-
vertíðinni.
Talsvert veiddist af smokkfiski á Vest-
fjörðum um haustið, og var bann látinn
í íshús á Arnarfirði og Dýrafirði.
Frá Flatey gekk 1 vélskip stærra en
12 lestir og 6 opnir vélbátar, með sam-
lals 31 mann, er það 1 opnum vélbát
fleira en árið áður. Vélskipið stundaði
Iiandfæraveiðar eingöngu. Ársafli 26
smál. (79).
Frá Víkum gengu 16 opnir vélbátar,
með samtals 50 manna áhöfn, og er það
3 bátum færra en árið áður. Ársafli 98
smál. (115).
Frá Patreksfirði gengu 2 togarar og
einn opinn vélbátur, með samtals 56
menn. Þetta er sama skipatala og árið
áður. Yfir vertíðina stundaði ekki nema
einn togari veiðar frá Patreksfirði, því að
togarinn Andri (nú Vörður) var ekki
keyptur þangað fyrr en um vorið. Tog-
ararnir stunduðu karfaveiðar allt sum-
arið, en söltuðu jafnframt, það sem þeir
fengu af þorski. Arsafli 809 smál. (1328).
Frá Tálknafirði gengu 3 opnir vélbát-
ar, með 12 menn, og er það sama báta-
tala og árið áður. Ársafli 12 smál. (11).
Frá Arnarfirði gengu 1 vélbátur minni
en 12 lestir og 6 opnir vélbátar, með sam-
tals 27 manna áhöfn; er það 2 vélskipum
og 6 trillubátum færra en árið áður. Mik-
ill hluti aflans úr Arnarfirði var lagður
á land í Dýrafirði. Ársafli 53 smál. (160).
Frá Dýrafirði gengu 3 línuveiðagufu-
skip, 1 vélbátur yfir 12 lestir, 2 minni og
3 opnir vélbátar, með samtals 86 menn;
er þetta 1 línuveiðagufuskipi og 3 trillu-
bátum fleira en árið áður, en 1 vélbát
(vfir 12 lestir) færra. Línuveiðagufu-
skipin lögðu allan afla sinn á vertíðinni
upp í Hafnarfirði. Ársafli 211 smál.
(356).
Frá Önundarfirði gengu 3 vélbátar
minni en 12 lestir, með 20 manna áhöfn,
og er það 2 bátum færra en fyrra ár.
Arsafli 33 smál. (416). Árið 1936 stund-
uðu 4 togarar karfaveiðar frá Flateyri,
og kom töluverl í land af þorski frá þeim,
sem lagður var upp á Flateyri og Þing-
eyri, og veldur sá afli, að verulegu leyti,