Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.01.1954, Blaðsíða 12

Tímarit lögfræðinga - 01.01.1954, Blaðsíða 12
því minna svigrúm og frjálsræði hefur stjórnvaldið við framkvæmd þeirra laga. I-Iér skal það eitt sagt, að íslenzk löggjöf verður almennt ekki talin binda hendur fram- kvæmdarvaldsins óeðlilega. Hins eru frekar dæmi, að lög- gjöf um mikilvæg stjórnarmálefni hafi stundum verið helzti snöggsoðin, og ekki eins skilmerkileg sem skyldi. Skal hér aðeins nefnt eitt nýlegt dæmi, — löggjöfin um stóreignaskattinn — sbr. 12.—15. gr. 1. 22/1950, um geng- isskráningu, launabreytingar, stóreignaskatt, framleiðsiu- gjöld o. fl. Um þennan þátt málsins skal annars eigi fjölyrt hér frekar, því að hvort tveggja er, að þeir, scm gagnrýna aukin afskipti alþingis af stjórnarframkvæmdum, munu ekki hafa þetta atriði í huga, og að sú grundvallarþýð- ing, sem löggjöfin hlýtur að hafa fyrir stjórnsýsluna, er augljós og þarfnast hvorki rökstuðnings né skýringa. Hitt er og einsætt, að fyrir stjórnvöldin skiptir það miklu, að lagasmíðin sé vönduð og vel úr garði gerð. Þegar lög eru samin þarf að hafa framkvæmd þeirra í huga. Líklega hefði löggjöf oft getað verið skynsamlegri og raunsannari, ef leitað hefði verið ráða hjá viðkomandi embættismönnum eða sýslunarmönnum, áður en frá henni var gengið. Að því efni mun verða vikið síðar. Að löggjafarstarfinu slepptu, byggjast áhrif alþingis á ríkisstjórnina og stjórnarframkvæmdir almennt á þing- ræðisreglunni, sem styðst hér við venju, en hefur auk þess stoð í stjórnarskránni. 1 þingræðisreglunni felst, að ráð- herrar þurfa að liafa traust eða a. m. k. hlutleysi meiri hluta þings. Ríkisstjórn er skylt að segja af sér, er alþingi hefur samþykkt vantraust á hana, enda neyti hún ekki þingrofsheimildar. Til tryggingar þingræðisreglunni og rétti þingsins til að krefja ríkisstjórnina reikningsskila og ábyrgðar eru einnig ýmis ákvæði í stjórnarskránni, svo sem um ákæruvald alþingis á hendur ráðherrum, um rétt alþingis til að kjósa rannsóknarnefndir, um heimild þing- manna til að bera fram fyrirspurnir til ráðherra og um 6
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.