Ægir

Volume

Ægir - 01.03.1999, Page 10

Ægir - 01.03.1999, Page 10
Norskar rækjur verða íslenskar I frétt í norska blaðinu Fiskaren kemur fram að samkvæmt nýjum reglum Evrópusambandsins geta fs- lendingar nú keypt norska rækju til vinnslu hérlendis, flutt hana tollfrítt til landa Evrópusambandsins og selt hana þar sem íslenska rækju. Reglur þessar kveða á um varan sé frá því landi þar sem verðmæti hráefnisins hefur aukist mest. Sem stendur skortir norskar rækjuverksmiðjur hráefni en það getur breyst með vorinu þegar flotinn hefur rækju- veiðar í Barentshafi og við Sval- barða. Aflahorfur þar eru taldar góðar og því gæti það komið Norðmönn- um vel að selja íslendingum rækju. Hvalveiðarnar: Kostnaðarsamt kynningarstarf TyTýsamþykkt þingsalyktunartil- L \ laga Alþingis, þar sem því er beint til ríkisstjómar að hefja undir- búning hvalveiða, liefur í fór með sér að ráðast þarfí umfangsmikið kynn- ingarstarfá sjónarmiðum íslendinga á erlendri gmndu. Kynningarstarfið mun hvíla á herð- um ríkisvaldsins en sölufyrirtækin munu heldur ekki komast hjá því að kynna sjónarmið íslendinga fyrir sín- um kaupendum. Samkvæmt upplýs- ingum sem Ægir hefur aflað er erfitt að sjá fyrir á þessari stundu hversu mikið kynningarstarfið mun kosta og hver á stýra því en allir eru sammála um að Hvalskipin liggja í Reykjavíkurhöfn. Ekki þarf mikinn tíma til að gera þau klár til veiða. hér sé verið að tala um háar fjárhæðir. Hjá kynningarvinnunni verði á hinn bóginn aldrei komist. NETAGERÐIN INGÓLFUR Vestmannaeyjar Sími 481 1235 Fax 481 3063 GSM 892 0280 Fáskrúðsfjörður Sími 475 1555 Fax 475 1553 GSM 896 5819 Þórshöfn Sími 468 1471 Fax 468 1473 GSM 894 8571 NETAGERÐIN INGÓLFUR 10 Miu

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.