Ægir

Volume

Ægir - 01.03.1999, Page 15

Ægir - 01.03.1999, Page 15
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI berja á þeim sem stýra menntamálun- um." Eins og kemur fram annars staðar í blaðinu hefur Fjölbrautaskóli Suður- nesja með höndum menntun neta- gerðarmanna og eftir að skólinn tók þetta hlutverk að sér hefur orðið fjölg- un menntaðra netagerðarmanna í landinu. „Með því að koma greininni inn í áfangakerfi framhaldsskóla þá verður hún aðgengilegri og síðan verður stig- ið stórt skref á næstunni þegar bóklega námið býðst í fjarkennslu. Það skref styður landssambandið af heilum hug Veiðarfærafræðsla á Netinu Eins og fram kemur í umfjöllun Ægis um veiðarfæri og veiðarfæra- þróun hefur Fjölbrautaskóli Suður- nesja umsjón með kennslu í veiðar- færagerð hér á landi. Ætlunin er að nýta tölvutæknina til fjarkennslu í framtíðinni en nú þegar hafa nem- endur unnið fræðsluefni sem sett hefur verið upp á vef Fjölbrauta- skóla Suðurnesja. Fyrst í röðinni var syrpa með myndum um veiðar með nót og er meðfylgjandi mynd úr þeirri syrpu. Ætlunin er að vinna hliðstætt efni um veiðar með öðrum veiðarfærum þannig að sem flestum verði þetta efni aðgengilegt á Netinu. Fieimasíða Fjölbrautaskóla Suð- urnesja er á slóðinni: http://fss.is því mörgum út um Iandið hrýs hugur við því að þurfa að flytja með fjöl- skyldu suður á Suðurnes til þess að taka bóklega hluta faggreinanna. Þörf- in á því hverfur um leið og fjar- kennslumöguleikinn opnast," segir Magni Guðmundsson. í tímans rás hefur margt í gerð veið- arfæra haldist lítt eða ekkert breytt en breytingarnar eru samt miklar. Komin eru fram ný efni sem eru léttari, sterk- ari og ódýrari og að sögn Magna er lít- illega farið að bóla á umræðunni um veiðarfæri og umhverfismál. „Til að mynda er farið að nota minna blý en áður í nótum enda kom í ljós þegar menn fóru að nota skynjara til að mæla hvernig næturnar sökkva að það þurfti ekki allt þetta blý sem notað var áður. Þetta er dæmi um breytingu sem orðið hefur með meiri vitneskju um hegðan veiðarfæranna í sjó og í okkar grein, eins og öðrum, skilar aukin þekking og fræðsla greininni fram á við," segir Magni. FRAMTAK, Hafnarfirði Kraftmrikril og lipur viðgerðarþjónusta • VELAVIÐGERÐIR • RENNISMIÐI PLOTUSMIÐI » TURBINUVIÐGERÐIR________ » DÍSILSTILLINGAR - BOGI » VARAHLUTAÞJÓNUSTA »UNIservice efnavörur_____ » DÆLUR, LOFTPRESSUR, VENTLAR og annar búnaður MKG kranar, Geislinger tengi, Kaeser loftpressur, C.C.JENSEN skipsgluggar,TURBO UK varahlutir, FLEX-HONE slípibúnaður, KIPA plasttappar, Tempress þrýsti- og hitamælar og C.A.V. þjónusta. FRAMTAK c6dÞjómisTa VÉLA- OG SKIPAÞJÓNUSTA VECURÞUMGT Drangahrauni l-lb Hafnar f j örður Sími: 565 2556 • Fax: 565 2956 Netfang: framtak@isholf.is Heimasíða: www.isholf.is/framtak ÆGiIR 15

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.