Ægir

Árgangur

Ægir - 01.03.1999, Síða 25

Ægir - 01.03.1999, Síða 25
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI Fyrst og fremst þjónusta við heimamarkaðinn - segirJón Sveinsson hjá Toppneti ehf. á Skagaströnd Jón Sveinsson hugar, ásamt starfsmanni Toppnets, að trolli á bryggjunni á Skagaströnd. Netagerðirnar hritiginn t kringum landið eru fyrst og freinst íþvt hlutverki að sinna sínum heima- markaði. Þannig er þetta einnig hjá okkur hér á Skagaströnd," segir Jón Sveinsson, netagerðarineistari, eig- andi netaverkstœðisins Toppnets á Skagaströnd. Að jafnaði eru um fjög- ur ársstörfhjá fyrirtcekinu en Jón segir alltaf sveiflur í verkefnum. „Við þjónustum útgerðaraðilana hér heima sem eru á rækju í Húnaflóa en síðan höfum við töluverð verkefni við togarana hjá Skagstrendingi, t.d. fiskitrollin hjá Arnari. Það er alltaf far- sælt skip og að sjálfsögðu teljum við okkur eiga þátt í velgengninni," segir Jón. Örvar gerður klár á Flæmska hattinn „Verkefnin eru samt mest í kringum rækjuna, bæði uppsetning á nýjum veiðarfærum og viðgerðir. Rækjuveið- arfærin eru alltaf mjög tímafrek í vinnu en hvað fiskitrollin varðar þá er oftast um að ræða að sníða til nýja hluta inn í trollin sem síðan eru settir í um borð. Fiskitrollin eru eins og spýtubátarnir - það er skipt um eitt stykki í einu." Toppnet hefur að undanförnu undir- búið togarann Örvar fyrir veiðar á Flæmska hattinum en togarinn verður úti næstu 10 mánuðina. Setja þarf upp ný rækjutroll og slíkt er stórt verkefni fyrir ekki stærri netagerð en Toppnet er. „Fyrir okkur er þetta verkefni um 1700 vinnustundir, eða Hjá Toppneti lieþtr m.a. að undanfómu verið unnið að uppsetningu á veiðarfœrum fyrir rœkjuveiðar togarans Örvars á Flœmska hattinum. nærri heilt ársverk, þannig að svona lagað skiptir okkur miklu máli," segir Jón. AGIR 25 Nota innlent ef hægt er Vírar, lásar og flestir aðrir hlutir en netin sjálf eru fluttir inn en Jón segist fyrst og fremst nota net frá Hampiðjunni og trollkúlur frá Sæplasti. „Hampiðjan er að framleiða fyrsta flokks vöru og veitir okkur líka mjög góða þjónustu," segir Jón. „Þegar toppar ganga yfir í verkefnum er yfirleitt auðvelt að fá mannskap." „Þegar svo stendur á fæ ég gjarnan sjómenn sem eru í fríi. Þeir eru alltaf viljugir að koma inn í vinnu og hafa gaman af því að læra svolítið meira í netagerðinni," segir Jón Sveinsson. AXAAAAXAÁAÁÁAA.MteuEpiaAfioiiæjjBmXXXXXXXXXXXXX

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.