Ægir

Årgang

Ægir - 01.03.1999, Side 42

Ægir - 01.03.1999, Side 42
Hrafnkell Eiríksson, forstöðumaður nytjastofnasviðs Hafrannsóknastofnunar: Smáfiskaskilj urnar eru bylting síðari ára í veiðarfæraþróun TJyrír dyrum stendur að ráðinn -T verði starfsmaður að Hafrann- sóknarstofnun sem hafi veiðarfœra- rannsóknir að aðalstarfi. Sérfrœðing- ur stofnunarinnar í veiðarfœrarann- sóknum til fjöida ára var Guðni Þor- steinsson en eftir ótímabœrt fráfalls hans fyrir hálfu öðru ári hefur ekki fundist eftirmaður til að sintia veið- arfœrarannsóknum en Hrafnkell Ei- ríksson, forstöðumaður nytjastofna- sviðs stofnunarinnar, segir fidla þörf á að sem fyrst fáist starfsmaður í hinar mikilsverðu rannsóknir á veið- arfœrum. Engu að síður er veiðar- fœrarannsóknum sinnt affremsta megni hjá stofhuninni og er Hafró þátttakandi í fjölþjóðlegu starfi á sviði veiðarfœrarannsókna. Þunga- tniðja starfsins, jafnt heima sem er- lendis, hefur snúist utti þróun á tœkni til að skilja út smáfisk og ung- viði, fyrst og fremst ttieð svokölluðum smáfiskaskiljum. „Það að reyna að skilja smáfisk út með t.d. klæðningum í trollum er ekki nýtt af nálinni en það sýndi sig að fastar grindur, smáfiskaskiljurnar, skila mestum árangri í þá átt að skilja út óæskilegan afla," segir Hrafnkell og hans mat er að líta beri á smáfiska- skiljurnar sem byltingarkennda breyt- ingu í veiðarfæratækni síðari ára. Skiljur henta best til þorksveiða Mælingar hafa sýnt fram á að skiljurn- ar skila best sínu hlutverki við veiðar á Hrafhkell Eiríksson. þorski og ýsu. Þó er staðreynd að ýsan virðist viðkvæmari fyrir skiljunum en þorskurinn og nú eru yfirstandandi rannsóknir sem miða að þróun smá- fiskaskilju sem nýtist betur við ýsu- veiðar. „Það er mjög erfitt að nefna tölur um áhrif af skiljuveiðum en ekki óal- gengt að 50% af fiski undir 50 cm sleppi í gegnum skiljur. Menn eru hins vegar dálítið óhressir með að í ýsunni virðast sleppa fiskar allt upp í 60 cm í gegn. Það þykja mönnum of stórir fiskar til að vera flokkaðir út," segir Hrafnkell. Norðmenn eru frumkvöðlar Skiljuþróunin hófst í Noregi, bæði með skilju fyrir bolfiskveiðar og síðan rækjuveiðar. „Ég tel að við höfum ekki verið eft- irbátar annarra þjóða í því að taka upp skiljuþróunina og aðlaga hana okkar aðstæðum. Við höfum átt samvinnu við norræna kollega okkar og einnig hafa farið fram tilraunir á vegum Al- þjóða hafrannsóknarráðsins varðandi skiljur og í sumum tilfellum hafa þær verið gerðar í skipum hér heima. ís- lendingar hafa því fylgt að fullu eftir þróuninni," segir Hrafnkell. Skiljunotkunin mun aukast Hugmyndafræðin að baki fiskiskiljum er að flokka úr óæskilegan afla. Hrafn- kell segir árangurinn af notkun þeirra mjög mismunandi eftir fisktegundum, t.d. liggi ljóst fyrir að hefðbundnar fiskiskiljur henti illa við kola- og karfa- veiðar. En hann segir að smám saman hafi svæðum fjölgað þar sem skylt er að nota skiljur við togveiðar og í fram- tíðinni hljóti skiljunotkun að aukast, fremur en hitt. „Norðmenn hafa sýnt fram á í rannsóknum sínum að fiskur lifir af að fara í gegnum skiljur. Sér í lagi á það við um þorskinn en ýsan er við- kæmust. Samt sem áður eru töluverðar líkur á að hærra hiutfall af ýsu lifi af að fara í gegnum skilju en að smjúga í gegnum netmöskva. Þetta segir okkur að við erum örugglega á réttri leið í þróun gagnvart bættri umgengni um fiskistofnana," segir Hrafnkell. 42 miu

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.