Búnaðarrit - 01.01.1919, Blaðsíða 95
BÚNAÐARRiT
85
heita, eftir því sem gerist, þegar þrevetra folar eru 186
cm. á hæð, eða 52 þuml., og að sama skapi þreknir.
Hinir folarnir þrír, voru einnig lagleg hestefni. Tveir
af þeim voru brúnir, 133 cm. á hæð hvor þeirra. Sá
af þeim sem mældist þreknari, 148 cm., var frá Þor-
steini bónda Jónssyni á Húsatóftum. Hinn var frá Syðri-
Kvihólma. Þriðji folinn í þessum flokki var frá Strandar-
hjáleigu, steingrár á lit, 132 cm. á hæð.
Um hryssurnar er það að segja, að margar þeirra
voru góðir gripir, en fáar sem báru verulega af öðrum.
Hryssurnar í öðrum flokki voru yfirleitt fallegar, og
flestar 135—138 cm. á hæð. Bestu hryssurnar voru frá
Stóra-Ármóti, rauð, 7 vetra; Hemlu, brún, 6 vetra;
Núpstúni, bleik, 5 vetra (seld á sýningunni); Hól í Út-
Landeyjum, brún, 4 vetra (138 cm.); Neðradal i Bisk-
upstungum, rauð, 9 vetra (138 cm.); Syðri-Rauðalæk,
grá, 11 vetra; Hólmum, rauð, 11 vetra; Skinnum í
Þykkvabæ, leirljós, 10 vetra; Berghyl, móálótt, 4 vetra
(136 cm.); Áifsstöðum á Skeiðum, brún, 6 vetra o. s. frv.
Þriðja flokks hryssurnar voru flestar laglegar, og allar
sæmilegar. Þær voru 132—135 cm. á stærð. Hryssur
þær, sem ekki náðu þvi að vera 131 cm. (50 þuml.) á
hæð, komu ekki t.il álita við úthlutun verðlaunanna,
nema þá að það væru afbragðs reiðhross.
V. Athugasenidir.
Af þessum sýningum, sem hjer er getið, er það
Þjórsártúns-sýningin sem vekur athygli þeirra, er þetta
lesa, og hafa einhvern áhuga á hestaræktinni. Þessi sýn-
ing að Þjórsártúni er sjötta hjeraðssýningin þar. — í
Borgarfirðinum var það sú þriðja í röðinni. En í hinum
sýslunum var það í fyrsta skifti sem þar hafa verið
haldnar slíkar sýningar.
Sumir vilja halda því fram, að þessar hrossasýningar
geri ekki neitt gagn, og finna þeim ýmislegt ti! foráttu.
Jeg hefi áður, á öðrum stað (sjá „Frey“, XV., 1918,