Heimir : söngmálablað - 01.01.1937, Síða 42

Heimir : söngmálablað - 01.01.1937, Síða 42
36 B. A.: Edward Grieij um sakleysi Dreyfusar, svo lionum svall móður og fór liann að rita um málið í erlend blöð, og var þungorð- ur i garð Frakka. Hann hafnaði tilboði um að halda hljómleika í París með þeim ummæluiii, að hann vildi fyrst sjá, hvernig Dreyfusmálinu lyktaði. Rigndi nú skammarbréfunum yfir Grieg frá Frakklandi, og liafði hann mikla raun af því. Mörgum árum seinna (1903), þegar sakleysi Dreyfusar hafði sannast i málinu, þáði Grieg boð um að halda hljómleika í París. Hann hélt að allt væri nú gleymt og grafið. En það var nú öðru nær. Húsið var troðfullt, um 4000 álieyrendur, og fjöldi manns stóð fyrir utan og komst ekki inn. Grieg var tekið með dynjandi lófaklappi, en þá tóku óvinir lians til óspilltra málanna. Þeir píptu, stöppuðu í gólfið, og hrópuðu: „Biðjið afsökunar. Þér liafið móðgað Fralck- land!“ Grieg lagði taktstokkinn frá sér og beið róleg- ur. Sumir hrópuðu: „Út með liann!“ En aðrir hróp- uðu, eftir liljóðfallinu í einu Griegslaginu: „Ekki enn- þá!“, og enn aðrir lirópuðu: „Út með óróaseggina!“ Voru síðan verstu óróaseggirnir látnir út. Tók Grieg þá taktstokkinn, en þá hyrjuðu ólætin aftur. En sem betur fór, hyrjaði fyrsta lagið mjög sterkt, svo það vfirgnæfði liávaðann, og lauk hljómleikunum með full- komnum sigri Griegs. Hann var margkallaður fram og ællaði fagnaðarlátunum aldrei að linna. Einhver maður í salnum stóð upp og lirópaði: „Við fögnum bara snillingnum — tónskáldinu mikla!“ — Þegar Grieg kom út úr húsinu, var þrísett röð af lögregluþjónum honum til verndar. „Mér var innanbrjósts eins ög eg væri nokkurskonar Cromwell,“ komst hann að orði um þetta. Niðurl. í næsta bl. Baldur Andrésson.

x

Heimir : söngmálablað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimir : söngmálablað
https://timarit.is/publication/601

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.