Melkorka - 01.12.1944, Blaðsíða 32

Melkorka - 01.12.1944, Blaðsíða 32
mörgum félögum. Kvenfélögin hafa verið stofn- uð í flestum hreppum, og hafa þau haft hin sundurleitustu mál á stefnuskrá sinni, en yfirleitt öll verið þó nokkuð lífvænlegur félagsskapur. Sýslu-, héraða- og fjórðungasambönd hafa svo smám saman myndazt. Samtökin hafa sótt um styrk og oft fengið hann til ýmislegrar fræðslu- starfsemi. Landssambandigð K. í., sem stofnað var 1930, hefur aftur á móti mjög lítið starfað, vegna þess að það hefur aldrei haft neitt fjár- magn, er því nafni tekur að nefna, fyrr en nú, að Alþingi hefur veitt því 100.000 kr. Afstaða K. I. til hinna sambandanna er nú sem stendur nokkuð óskýr og tel ég því nauðsyn- legt, að eitt mitt fyrsta verk verði að safna skýrsl- um um starfsemi hinna ýmsu félaga og sam- banda, og reyna svo í samstarfi við félögin að koma á föstu heildarskipulagi um löggjöf þeirra og stefnuskrá. — Hér stendur, segir Svafa og dregur upp lög K. I. — að félagar K. I. séu kvenfélög og kven- félagasambönd, er starfa samkvæmt lögum, er K. í. samþykkir, svo að þetta þurfum við að at- huga nánar. — í hverju verður starf K. I. annars fólgið? — Það er nú bezt að segja sem minnst um það að svo stöddu. En hér stendur, segir Svafa, og lítur aftur í lögin. — Tilgangur sambands- ins er: 1) Að veita aðalforgöngu í starfandi félagsskap kvenna til eflingar húsmæðrafræðslu, heimilisiðnaði og garðyrkju í landinu með hvatningu, fjárstyrk og og eftirliti. 2) Að stuðla eftir megni að því, er létt getur störf hús- freyjunnar og bætt aðstöðu hennar. 3) Að vera ráðgefandi tengiliður milli ríkisvaldsins og kvenna í þeim málum, sem um getur í 1. og 2. lið. 4) AS efla og auka samvinnu kvenna og kvenfélaga í landinu. Um það, á hvern hátt sambandið hyggst að ná tilgangi sínum, segir í lögunum meðal annars: 1) Að koma upp skrifstofu í Reykjavík. Þetta er nú að rætast. 2) Að launaður framkvæmdastjóri veitti skrifstofu þessari forstöðu. — Starf þetta hef ég nú tekið að mér. 3) Að þar til hæfir ráðunautar leiðbeini í húsmæðra- fræðum, heimilisiðnaði og garðyrkju, eftir því sem við verður komið. — Þú átt nú að byrja með húsmæðrafræðin, svo að þér er þetta nú hér um bil eins vel kunn- ugt og mér. —- Já, en gáðu að því, að þetta er fyrir les- endur, sem ekki þekkja kvenfélaga-sambandið eins vel og við. í b-lið 4. greinar stendur: Að sambandið eigi að birta árlega greinargerð og skýrslur um störf og hag sambandsins, ásamt niðurstöðum rannsókna, er sambandið kann að hafa með höndum í þágu þeirra mála, er það fer með. — Hvað er átt við með þessu? — Jú, auðvitað er ætlazt til þess í framtíðinni, að K. í. gangist fyrir ýmsum rannsóknum í þeim málum, er húsmæður varðar, safni upplýsingum og yfirliti yfir heimilisáhöld, næringargildi og flokkun fæðutegunda o. s. frv. En til þess að nokkuð verði úr því, verður sambandið auðvitað að eignast fleiri starfsmenn, og vona ég, að rík- isstjórnin verði okkur hliðholl í framtíðinni og rausnarleg um fjárveitingu. — Hafa ekki sýslu- og héraðssamböndin haft farkennara á sínum vegum? ■—■ Jú, og auðvitað verður því haldið áfram, en ég teldi heppilegast, að kennarar þessir yrðu fastráðnir hjá K. í. með ákveðnu kaupi og á- kveðnum vinnutíma. Hin ýmsu sambönd gætu svo sótt til K. í. um að fá þá til starfs á sam- bandssvæðunum og átt við K. I. um kaupgreiðsl- una. Ég tel þetta nauðsynlegt, því að annars verð- ur alltaf níðzt á þessu fólki. Úr því að ég er farin að minnast á starfsmenn sambandsins, vil ég taka fram, að K. I. hyggst að hafa í þjónustu sinni bæði heimilisráðunauta og umferðakennara og eiga þeir að hafa að nokkru leyti ólíkt starfssvið. Umferðakennarinn hefði aðeins á hendi mat- reiðslu-, sauma-, vefnaðar- eða garðyrkjukennslu á lengri námskeiðum, en ráðunauturinn hefði styttri námskeið og fyrirlestra fyrir húsmæður og starfaði að því að safna saman ýmsum fróðleik, aðstoðaði við eða hefði á hendi ýmsar rannsókn- ir fyrir sambandið og aðstoðaði skrifstofustjóra við skipulagningu á starfsemi sambandsins. — 62 MELKORKA

x

Melkorka

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.