Melkorka - 01.12.1944, Blaðsíða 37

Melkorka - 01.12.1944, Blaðsíða 37
MELKORKA kveður sér hljóðs Ejtir Ingibjörgu Benediktsdóttur Víðar en í siklings sölum svanna fas er prýði glæst. Mörg í vorum djúpu dölum drottning hefur bónda fæðzt. M. J. Þegar ég vissi það síðastliðinn vetur, að í ráði var að gefa út kvennatímarit með vorinu, sem bera skyldi nafn Melkorku, konungsdótturinnar írsku, sem við lásum um í Laxdælu, þá datt mér allra fyrst í hug óprentað leikrit með því sama nafni, eftir Kristínu Sigfúsdóttur, sem skáldkon- an hafði sjálf lesið mér fyrir næstum tveimur ár- um, og mér fundizt mjög til um. Fékk ég þegar, í samráði við nokkrar konur í Reykjavík, leikrit- ið mér í hendur, ef verða mætti, að hægt yrði að koma því í heild, eða einhverjum hluta þess, á framfæri í sambandi við lýðveldisstofnunina eða landsfund kvenna síðastliðið vor. Af þessu varð þó ekki, ýmsra ástæðna vegna. En útvarpsráð samþykkti, að flytja tvo þætti leikritsins í útvarp- inu. Var það gert að kvöldi laugardagsins 1. júlí, undir leikstjórn Haraldar Björnssonar. Þótti það mjög vel takast og vakti óskipta athygli. Veit ég það glöggt, vegna afskipta minna af málinu, að Melkorka hin írska á mjög djúp ítök í hugum íslenzkra kvenna. Fannst mörgum það táknrænt vissi, að löng og erfið leið væri ófarin að settu marki: fullu jafnrétti milli kvenna og karla. Það er táknrænt um ævistarf hennar, sem Nordahl Grieg segir, — með fánann fyrir augum sér, sem hinar litlu barnshendur höfðu saumaö —: Det var som hun jörte til slutten med tynne, árete hender en jil over fangegiltret ut jra de stummes leir. Kristin Sigfúsdóttir skáldkona mjög, að Melkorka fengi málið fyrir hönd ýmsra frjálslyndra kvenna í Reykjavík, og saga hennar lit og líf í skáldverki þessarar vinsælu og gáfuðu sveitakonu. Og að þetta tvennt gerðist samtímis því, að konan væri að vakna og öðlast rétt sinn og frelsi í hinu unga lýðveldi. Konurnar þráðu að sjá Melkorku á leiksviðinu, sterka og glæsi- lega, sjá hana varpa af sér ambáttarkuflinum, heyra hana kveðja sér liljóðs eftir langa þögn, lýsa því átakanlega, hve tilfinningum hennar hafi verið misboðið, hvað þessir „þegnar þagnarinn- ar“ hafa þolað og strítt í þúsund ár. Það er eins og flestar hugsandi konur skilji skaplyndi og eðli Melkorku, hafi fengið í sinn hlut drjúgan skerf af lífsreynslu hennar. Já, „mörg í vorum djúpu dölum drottning hef- ur bónda fæðzt.“ Ein af þeim er Kristín Sigfús- dóttir. Þess vegna hefur henni lengi verið Mel- korka hugstæð og skilið hana svo vel. En hitt er ærinn vandi, að skapa þar heilsteypt nútímalista- verk, sem skáldkonan sjálf og aðrir verði fyllilega MELKORKA 67

x

Melkorka

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.