Tímarit um uppeldi og menntamál - 01.01.1888, Side 34

Tímarit um uppeldi og menntamál - 01.01.1888, Side 34
34 ar frá þessu. Og svo, þegar þessir kennarar eru neyddir til að lilaupa frá skólanum þegar minnst varir, svo peir eru sjaldan lengur en eitt ár eða tvö, þá getur ekki orðið mikil festa í þessari kennslu. |>að erlíkahin mesta óregla og agaleysi í einstöku afþessum skólum, svo að börnin, sem búin eru að vera í þeim, eru næstum óviðráðanleg og hafa vanizt á hverskonar ósiði. Kennararnir eru ýmist menn, sem hafa verið nokkra vetur á latínuskól- anum og farið þaðan án þess að ná prófi, menn frá Möðruvallaskólanum, og svoýmsir aðrir, sem fást, ýmist timburmenn eða búðarmenn; það eru að eins við 3 skól- ana kandídatar og prestaskólamenn. J>etta er fullkom- lega hið sarna og var í öðrum löndum seinast á öldinni sem leið, meðan skólarnir höfðu ekki náð neinni festu, og fengu litlar fjárframlögur, og menn voru neyddir til að velja hinn ódýrasta fyrir kennara. Hið sama liggur því fyrir hjá oss, sem alstaðar annarstaðar í þeim löndum, sem hafa komið alþýðu- fræðslunni í fast horf, og það er að veita nægilegt tillag af opinberu fje til eflingar alþýðumenntuninni, og að kennurum alþýðuslcólanna sé veitt meiri menntun, en hingað til hefur verið. Hin síðustu þing hjer hafa að vísu veitt nokkurn fjárstyrlc til alþýðufræðslunnar, en hann er svo lítill, að hans gætir eigi, sem skyldi. Sveit- irnar eiga svo fjarska erfitt með að standa straum af nokkrum aukaútgjöldum til uppfræðslu börnum sínum, þær liafa svo rniklar byrðir undir. pað er ómögulegt, að nokkur fastur, vel niðurskipaður skóli, geti orðið af svo litlum meðulum, sem sveitirnar hafa ráð yfir. Kennslan ætti að vera sem ódýrust, eða jafnvel frí; sveitirnar ættu ekki að þurfa að gjalda kennurum sín- um önnur laun en fæði, húsnæði, þjónustu og hita, hitt ætti að gjaldast af almannafje. J>ær þjóðir, sem hafa komið á þessu fyrirkomnlagi, álíta engu fje betur

x

Tímarit um uppeldi og menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit um uppeldi og menntamál
https://timarit.is/publication/134

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.