Morgunn - 01.06.1937, Blaðsíða 45
MORGUNN
39
Firð-lækningar.
Eftir W. H. Evans.
Spiritista S'amband Lundúna (London Spiritualist Alliance)
-er eitt af stærstu og merkustu spiritistafélögum á Englandi. Það
hefir stofnað til reglubundinna tilraunafunda í London og víðsveg-
ar um Bretland til þess að lækna sjúka menn, sem ekki geta verið
viðstaddir á þessum fundum. Leiðtogi þessa fyrirtækis heitir W. H.
Evans, og er stórkostlega sálrænn maður og hið mesta valmenni.
Hann gerir í eftirfarandi ritgjörð grein fyrir þessu starfi og ár-
angri þess. Eg efast ekki um, að hún verði lesin með áhuga, ekki
sízt þar sem yfirvöld þessa lands hafa um þessar mundir verið að
gera fremur illvíga tilraun til þess að girða fyrir það, að íslenzkir
.sjúklingar geti orðið slíkrar hjálpar aðnjótandi.
Eg hefi sérstakan áhga á lækningum í fjarlægð. Eg
er leiðtogi bænalækninga flokkanna fyrir lækningar í f jar-
lægð (The Devotional Groups for absent healing), sem
Spiritista samband Lundúna veitir forstöðu, og það hefir
gefið mér ríkulegt tækifæri til þess að kynnast árangrin-
um af þessum lækningatilraunum.
Tala þeirra, sem læknast hafa af þessum tilraunum,
er hvorki meiri né minni en 70 af hundraði. En hugar-
ástand þeirra sjúklinga, sem ekki hafa fengið líkamlegan
bata, hefir stórum batnað. Meira að segja meðal þeirra
30 af hundraði, sem ekki hefir tekist að lækna, verður að
telja þá, sem settir hafa verið á skrá flokkanna í því skyni
að hjálpa þeim til að komast inn á næsta stig lífsins.
Þeir hafa beinlínis gagn af tilraununum, því að þraut-
ir eru oft sefaðar og viðskilnaðurinn gerður auðveldur og
eðlilegur. En við teljum þá ekki með þeim mönnum, sem
hafa fengið heilsubót fyrir þjónustu flokkanna.
Lækning í fjarlægð er einn hlutinn af verki margra
kirkna spíritista. Enginn vafi er á því, að ef unt væri að
ná í árangurinn af því starfi þeirra, þá mundi koma fram