Morgunn - 01.06.1937, Blaðsíða 85
MORGUNN
79
áttum við hjónin heima í 4 ár. Aftur get eg ekki vitað
hvaða þorp er átt við í sambandi við okkur. Við áttum
hvorugt nokkurn tíma til langdvala heima í kauptúni.
Rétt er þó að geta þess, að í Hergilsey, þar sem við áttum
lengst af heima, eru 3 býli og 20—30 hús, þótt ekki séu
það íbúðarhús nema að litlum hluta.
Miðillinn eða stjórnandinn fór svo aftur að tala um
hvíta húsið og í sambandi við það segir hann: „Eg sé
gamlan mann; hann er með hvítt hár og mikið hvítt
skegg; ennið er stórt og augun gáfuleg; hann hefir ver-
ið mikill starfsmaður; menn hafa borið mikið traust til
hans. Mér heyrist sagt sveitarhöfðingi. Eg var ekki í
vafa um, að þetta var rétt lýsing á prófasti síra Bjarna
Símonarsyni á Brjánslæk. En hjá honum vorum við þau
4 ár, sem við dvöldum þar. Nú sé eg háa konu, togin-
leita; hún stendur við hliðina á þér, hárið er skift í miðju
og farið að grána og hún vill segja eitthvað. En það er
hér önnur kona, sem stendur fyrir aftan þig, og styður
höndunum á axlirnar á þér. Nú vefur hún handleggjun-
um um hálsinn á þér. Hún er þér mjög nákomin, hún er í
ísl. búningi. Þessar tvær konur togast á um kraftinn. Báð-
ar vilja komast að, en við ætlum að fá þá eldri til að bíða,
því að eg held að þessi yngri sé þér enn meira hjartfólgin
en hin. Nú er hún að sýna mér brjóstnál, stóra kúpta víra-
virkisnál. Hún er með köflótta svuntu (er hún köflótt?).
Ja, það eru í henni langar rákir. Hún sýnir mér upphlut.
Og nú sýnir hún mér hvernig hún nælir nálinni í slifsið
sitt í miðjan hnútinn á slifsinu. Hún er fríð, ennið er fal-
legt, augun fjörleg, eg held þau séu dökkblá (konan
mín var brúneygð), hárið er sem þið kallið jarpt (rétt);
Það er skift meira út í annan vangann (rétt). Nú veit eg
að hún á þig. Þetta er áreiðanlega konan þín. Og ykkur
hefir altaf fallið vel. Aldrei hefir neitt komið á milli ykk-
ar. Já, hún elskar þig og þú hana. Yfir henni hvílir há-
tignarleg ró og friður. Hún hefir alstaðar komið vel fram.
Henni hefir líka þótt vænt um dýr (alt rétt). — Hún