Morgunn - 01.06.1971, Page 86
80
MORGUNN
fundi. Hann var þá í harðri andstöðu við meiri hluta bæjar-
stjórnar, og eitt sinn, er hann gagnrýndi harðlega stjórnina á
bænum, komst hann svo að orði, að varla væri við góðu að bú-
ast af mönnum, sem stjórnuðu bæ milli Bráðræði og Ráðleysu.
Frá Ráðleysu lá götutroðningur eða tröð að steini einum, sem
stóð á lóðamörkum, þar sem nú eru Vitastigur 14 og 16. Allt í
kringum stein þennan óx mjög mikið af lyf jagrasi, er mellifolia
nefnist; dró steinninn af því nafn og var almennt kallaður
Mellifoliusteinn. Tröð þessi var stundum kölluð ElskendatröS,
því snemma varð Mellifoliusteinn stefnumótsstaður ungra ást-
fanginna Reykvíkinga, enda strjálbýlt á þeim slóðum í þá daga,
eins og áður getur.
Um þær mundir unnu margir fyrir sér hér í bæ með því að
höggva grjót til bygginga. Steinhöggvarar þessir litu elskenda-
steininn hýru augu sem byggingarefni og reyndu margir að
kljúfa steininn, en engum tókst það og þótti furðulegt.
Æ. R. K. skráði eftir frásögn Ólafs Einarssonar, bílstjóra.