Morgunn


Morgunn - 01.12.1980, Side 33

Morgunn - 01.12.1980, Side 33
HINN STÓRKOSTLEGI MÖGULEIKI 127 ingu; og svo eru að lokum þeir, sem eru steinhættir að brjóta heilann um þetta, en kjósa heldur að njóta bara líðandi stundar. Vér sem höfum alist upp við kristna lífsskoðun eigum eigin skýringu á lífinu og þjáningum þess, og hún er þessi: maður- inn hefur sál og hún er ódauðleg; þjáningin er prófraun sem drottinn leggur fyrir oss, og himnaríki eða helviti fela i sér þá umbun eða refsingu, sem bíður vor eftir því hvernig vér höfum brugðist við vandamálum þessa lífs. Þeir sem eru þess- arar skoðunar hafa ekki þessa trú sökum þess að vér höfum fengið sannanir fyrir gildi hennar, heldur vegna hins að oss hefur verið kennt þetta i krafti þess valds, sem foreldrar og klerkar hafa. Og þessir aðilar hafa með sama hætti lært þetta íif sínum foreldrum og prestum; og þannig má rekja þetta afturábak þangað til vér komum að bók sem kölluð er Biblían og manni sem er nefndur Jesús. Flestir geta verið sammála um það að þessi bók sé mjög merkileg, og að Jesús — hvort sem hann var venjulegur mað- ur eða guðssonur — hafi verið frábær persóna. En síðan á endurreisnartímanum hafa vestrænir menn í vaxandi mæli tekið að efast um trúarkenningar, sem haldið er fram í nafni valds, hvort sem þar á í hlut bók eða persóna; þeir hafa haft vaxandi vantrú á öllum trúarbrögðum, sem ekki er hægt að sanna með vísindalegum aðferðum, að fari með rétt mál. Ptolemeus (frægur stjörnu- og stærðfræðingur, uppi á 2. öld e. Kr.) sagði — og kirkjan féllst á kenningu hans og kenndi hana — að sólin snerist kring um jörðina. Engu að siður sýndu verkfærin, sem Kopernikus fann upp og notaði, að það var þvert á móti jörðin, sem snerist um sólina. Kirkjan féllst fullkomlega á sálfræði og visindi Aristótelesar, en hann hélt þvi fram, að væru tveir mismunandi þungir hlutir látnir detta, þá mundi þyngri hluturinn koma fyrr til jarðar. Þó sýndi Galileo fram á það með einfaldri tilraun ofan úr skakka turninum í Pisa, að tveir hlutir, sem hafa sama umfang en mismunandi þunga koma á sömu stundu til jarðar, þegar þeir eru látnir detta. Ýmsar setningar í biblíunni gáfu í skyn að jörðin væri flöt. Engu að siður kollvörpuðu þeir Kólumbus,

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.