Jazzblaðið - 01.09.1951, Side 5
aldur lék í hljómsveitinni allt þangað til
hann fluttist til Vestmannaeyja fyrir rúm-
um tveimur árum.
Haraldur sat ekki lengi auðum höndum
þegar til Eyja kom. Lengi hafði vantað
góða danshljómsveit í Samkomuhúsið og
tókst Haraldi á undraverða skömmum tíma
að ná saman prýðilegri hljómsveit. Þurfti
hann m. a. að kenna sumum piltanna á
hljóðfærin áður en nokkuð var hægt að
gera.
í hljómsveitinni voru fyrst með Haraldi
Guðni Hermansen á tenór, Gísli Bryngeirs-
son klarinet, Haraldur Baldursson guitai',
Sigurður Guðmundsson trommur og Alfreð
W. Þórðarson píanó. Nokkru síðar tók Jón
Steingrímsson við af Alfreð og enn síðar
Gísli Brynjólfsson við af Haraldi Baldurs-
syni. í vor tók Arni Elfar sæti Jóns Stein-
grímssonar, er hann fórst í flugslysi á hinn
vofeiflegasta hátt, eins og alla rekur minni
til. Þá stækkaði hljómsveitin ennfremur við
það, að Axel Kristjánsson bassaleikari,
æskuvinur Haraldar og samstarfsmaður í
hljómsveit Björns R., bættist við með bassa,
og hét hljómsveitin nú ekki lengur H. G,-
sextetinn, heldur hljómsveit Haraldar Guð-
mundssonar.
Þegar Haraldur fór burt úr Reykjavík
lagði hann niður stjórnandastörf við Mandó-
linhljómsveit Reykjavíkur, sem blómgvast
hafði mjög undir stjórn Haraldar, sem að
Hljómsveit
Haraldar Guðmundssonar.
Frá vinstri, fremri röð:
Gísli Bryngeirsson,
Guðni Hermansen,
Haraldur Guðmundsson og
Axel Kristjánsson.
Aftari röð:
Sigurður Guðmundsson,
Gísli Brynjólfsson og
Árni Elfar.
nokkru leyti má marka á því, að við brott-
för Haraldar lagðist hið margþætta starf
hljómsveitarinnar niður, og hefur ekkert
frá henni heyrzt síðan. í Eyjum hefur Har-
aldur Guðmundsson engu að síður haldið
merki tónlistarinnar hátt en í Reykjavík.
Hann stjórnar góðri danshljómsveit eins
og áður hefur verið nefnt, ennfremur hef-
ur hann stjórnað stórum kór þar um nokk-
urt skeið, hann hefur auk þess leikið á
trompet með hinni fyrirtaks góðu Lúðra-
sveit Vestmannaeyja. Auk alls þessa hefur
hann gefið sér tíma til að koma fram á
skemmtunum sem mandólíneinleikari og
hefur þá Oddgeir Kristjánsson aðstoðað
hann á guitar, en eins og margir vita, lék
Oddgeir í mörg ár fyrir dansi í Vestmanna-
eyjum, en hefur nú í seinni tíð aðallega
helgað sig Lúðrasveitinni, sem hann hefur
stjórnað af mikilli röggsemi.
Svo aftur sé vikið að hljómsveit Harald-
ar, þá gafst undirrituðum gott tækifæri til
að hlusta á hana fyrr á þessu sumri og
skal hiklaust fullyrt, að hún er í hópi beztu
danshljómsveita, er nú starfa hér á landi.
Þeir félagar í hljómsveitinni tóku sig til
og endurbættu Alþýðuhús Vestmannaeyja,
sem verið hafði í mikilli niðurnýðslu. Er
það nú orðið eitt vistlegasta samkomuhús
hérlendis. Hljómsveitin hætti að leika í
Samkomuhúsi Vestmannaeyja seinnipart
Framh. á bls. 7.
#a„l,UiÍ