Jazzblaðið - 01.09.1951, Síða 15
Björn R. Einarsson hefur verið með
átta manna hljómsveit sína á dansleikja-
og hljómleikaferðalagi mestan hluta sum-
arsins. Fyrri hluta sumars fóru þeir vest-
ur á firði og léku þar við góðar undirtekt-
ir, en ekki of mikla aðsókn, sem mun vera
af því, að á stöðum þeim er þeir léku eru
það fáir búsettir, að varla hefði svarað
kostnaði að koma þangað. Hins vegar var
mun meiri aðsókn að dansleikjum hljóm-
sveitarinnar í norður og austur ferðinni.
Var hljómsveitin í þeirri ferð í tæpan mán-
uð. Einnig hefur hljómsveitin haldið dans-
lciki í nágrannabæjunum hér sunnanlands
við hinar beztu undirtektir.
Leikur hljómsveitarinnar er áreiðanlega
sá allra bezti sem heyrzt hefur hjá hér-
lendri danshljómsveit. Björn hefur gert
mikið af því að syngja með hljómsveitinni
í sumar og hefur það líkað vel, honum
hefur farið mjög mikið fram og syngur
hann af mikilli smekkvísi. -Ennfremur er
söngkvartett innan hljómsveitarinnar, sem
syngur nokkur lög' á hverjum dansleik og
gera þeir þessum fáu lögum sínum prýði-
leg' skil.
í hljómsveitinni leika eftirfarandi menn
(sjá myndina, talið frá vinstri) : Jón Sig-
urðsson bassi, Gunnar Ormslev tenór, Guð-
mundur R. Einarsson trommur, Vilhjálmur
Guðjónsson altó, Jón Sigurðsson tvompet,
Gunnar Egilson altó, Björn R. Einarsson
trombón og Magnús Pétursson píanó. —
(Saxófónleikararnir leika jafnframt állir
á klarinet og eins leikur Björn á harmon-
iku). Myndin til hægri var tekin af Pétri
Thompsen á hljómsveitarpallinum í Lista-
mannaskálanum, myndskreytingin bak við
hljómsveitina er gerð af Árna Elfar, sem
áður lék á píanó hjá Birni.
$a:zt,LM 15