Jazzblaðið - 01.09.1951, Blaðsíða 23
Nýir íslenzkir danslagatextar
Eftir Erling Ágústsson
ENDURMINNING
(Lag: My heart cries for you).
Aldrei gleymast mér augun þín yndisblá
að þú elskir mig er min von og þrá.
Eg man þig ætíð síðan ég fyrst þig sá,
þín æskuminning fyllir mitt hjarta þrá,
þvi langt er síðan gengum við hlið við hlið,
ég hef ei síðan fundið neinn frið.
Aldrei gleymast mér o. s. frv.
Ég syrgi þig svo sárt, þegar vorið hlær,
þá finn ég bezt hvað minning þín er mér kær;
um stjörnubjartar nætur, er máninn skín
ég svíf i mínum draumum til þin.
Aldrei gleymast mér o. s. frv.
Ég býð þín þegar blómanna ylmur dvin
og bið þess að þú komir nú senn til mín,
við skulum ganga saman um lifsins stig,
mitt sjúka hjarta tilbiður þig.
Aldrei gleymast mér o. s. frv.
KVEÐJULJÓÐ
(Lag: Is it too late!)
Þgar um loftið svífur söngfugla sveit
sendi ég kveðjuljóð til þín.
Mörg sumarkvöldin man ég faðmlög þín heit
mannstu ekki kveðjuorðin mín?
Þegar svo húmið hylur laufgrófin lund
liggur mín leið um farinn veg,
þá munum við eiga saman yndælan endurfund,
ástin min, þú og ég.
SÓLSKINIÐ SINDRAR
(Lag: Beloved he faithful)
Er sólskinið sindrar urn heiðloftin blá,
hve sælt væri að svífa á vængjum þá.
Og blómanna ilmur þá angar um geim.
Þá er allt svo fagurt um gjörvallan heim.
Þegar kvölda fer, máninn lýsir mér,
mildur blærinn andar hljótt
Stjörnurnar brosa inn um gluggann minn,
og ég býð þeim góða nótt.
Hve sælt er að lifa á líðandi stund,
við lúfustu minningar fell ég í blund.
EG ELSKA ÞIG
(Lag: The man I love).
Er leikur Ijúfur blær
um loftin blá,
þín minning er mér kær
eg man þig þá.
Eg ætíð unni þér,
og ást til þin í brjósti ber.
Ég leik mín ástarljóð
um liðna stund.
Og svíf á forna sló#
svo létt i lund,
því ást mín heit og hrein,
er helguð þér — ég ann þér ein.
Þegar húmið hylur voga,
hugur minn flýgur heim til þín.
Ljúft er þá aðlifa og dreyma
liðnar stundir, þegar þú komst til min.
Eitt kyrrlátt sumarkvöld,
ég kem til þin.
Því ástin á öll völd,
er máninn skín.
Og þá einn áttu mig,
þú ert mér allt, ég elska þig.
Hljómsv. B. R. E.
Framh. af bls. 22.
tveimur útsetningum. „Memories of you",
„Sid’s bounce“, „Surrender dear“ og Deep
purple“ voru boðleg- á hljómleika. Allt ann-
að er þarna var borið fram var ósmekk-
lega valið og eins og fyrr getur fljótfærnis-
lega, má slíkt þykja merkilegt, þar sem
Björn hefur fram að þessu verið talinn
fær um að velja lög fyrir hljómsveit sína,
þegar hún hefur komið fram á hljómleikum.
Oddur.
^axxLtaSit 23