Jazzblaðið - 01.09.1951, Síða 24
INNLENT fréttayfirlit síö-
ustu mánaða. — Við það, að
Björn R. Einarsson hætti með
hljómsveit sína í Breiðfirö-
ingabúð síðast í maí hafa orð-
lð nokkur skipti 1 hljómsveit-
um bæjarins. Björn byrjaði
með þeim Gunnari Ormslev,
Vilhj. Guðjónssyni, Guðmundi
R., Jónunum tveimur, Magnúsi
P. og Gunnari Egilson, sem
hætti hjá Billich en þangað
kom Guðmundur Vilbergsson
með trompet og harmoniku. —
Guðmundur Finnbjörnsson, er
annars var í átta manna
hljómsveit Björns, fór í Breið-
íirðingabúð í hljómsveit Svav-
ars Gests, en þar eru einnig
þeir Grettir Björnss. og Stein-
þór Steingrimsson. — í stað
Guðm. Finnbjörnssonar, sem
leikið hafði um skeið í hljóm-
sveit Braga Hlíðberg kom
Bragi Einarsson með klarinet
og tenór-saxófón, en Bragi er
í mikilli framför sem tenór-
isti. Björn lék með átta manna
hljómsveit sinni í stuttan tíma
í Listamannaskálanum, en
hætti þar um miðjan júni og
tók Þórarinn Óskarsson við af
honum aítur, en ekki var Þór-
arinn búinn að raöa endanlega
niður í hljómsveitina fyrir
haustið, þegar þetta er ritað.
— Hljómsveit Kristjáns Krist-
jánssonar lék í útvarpið á Sjó-
mannadaginn og sungu þau
Haukur Morthens og Sigrún
Jónsdóttir með hljómsveitinni.
— 17. júní léku fjórar hljóm-
sveitir fyrir dansinum hér í
Reykjavík. Hljómsveit Aage
Lorange, Björns R. Einarsson-
ar og Kristjáns Kristjánsson-
ar léku fyrir nýju dönsunum
og hljómsveit, sem Svavar
Gests hafði sett saman lék
fyrir gömlu dönsunum. — Út-
varpað var frá öllum hljóm-
svéitunum og söng Haukur
með K. K. og Lorange og Sól-
veig Thorarensen söng einn-
ig með Lorange hljómsveitinni.
— Sólveig hefur sungið tals-
vert með hljómsveitum í sum-
ar, en þrátt fyrir það er ekki
hægt að segja annað gott um
söng hennar en það, að henni
tekst bezt í „jump“ lögum,
þar sem hún getur hamast af
sem mestum krafti. En ekki
er að vita nema úr henni ræt-
ist. — Kvöldstjörnur nefna
fjórar ungar stúlkur sig, sem
dálítið hafa gert að því, að
syngja undanfarið. Hafi þær
fengið einhvern til að segja
sér til, æfa raddir og annað
álíka nauðsynlegt, þá hefur sá
góði maður staðið sig illa. —
Hafi þær hiiis vegar ekki gert
slikt, ættu þær að athuga að
syngja ekki mikið opinberlega
fyrr en slíku hefur verið kippt
í lag. Anars hafa þær prýði-
legar raddir hver fyrir sig. —
Hljómleikar F.Í.H. voru haldn-
ir seint í maí og má nánar sjá
um þá á bls. 8. — Lúðrasveit
undir stjórn Kristjáns Krist-
jánssonar lék á Verzlunar-
mannahátíðinni og þótti henni
takast sérstaklega vel upp. —
Karl Jónatansson, sem leikið
hefur í Keflavík síðan í
fyrrahaust, fór til Akureyrar
nú í sumar, þar sem hann
hefur stjórnað hljómsveitinni
að Hótel Norðurlandi. — Þeir
Guðjón Pálsson og Rútur
Hannesson hafa leikið 1 Sam-
komuhúsi Vestmannaeyja í
sumar. Guðjón var með hljóm-
sveitina þar, en auk þeirra voru
i henni ungur og efnilegur
trommuleikari, Sigurður Þór-
arinsson að nafni, og guitar-
leikarinn Haraldur Baldurs-
son, sem einu sinni var í H.G.
sextettinum. — Fimmti mað-
urinn hefur bæzt i hljómsveit
Borgarness og er það guitar-
leikari að nafni Hreinn Hall-
dórsson. Hljómsveitin er hin
skemmtilegasta á að hlýða er
blaðinu tjáð, og í stöðugri
framför, enda fylgjast þeir fé-
lagar vel með músíklífinu. —
Árni ísleifsson hefur leikið í
hljómsveit Braga Hlíðberg á
meðan Guðjón Pálsson hefur
verið í Eyjum. Hljómsveitin
fór út á land í sumar ásamt
Hauk Morthens og héldu dans-
leiki viða, við hinar beztu und-
irtektir. — Bjami Böðvarsson
fór einnig á dansleikjaferð út
á land með fimm manna
hljómsveit og 2 söngvurum.
— Björn R. Einarsson og
hljómsveit hans hafa haldið
dansleiki víða í nágranna bæj-
unum og fengið góða aðsókn.
í júlí fóru þeir til Vestfjarða
og héldu víða dansleiki alls-
staðar við mjög góðar undir-
tektir. Á ísafirði héldu þeir
jazzhljómleika og eru þetta
fyrstu sjálfstæðu hljómleikar
einnar hljómsveitar. Um miðj-
an ágúst fór hljómsveitin í
ferð norður og austur. Björn
hefur gert talsvert að því, að
syngja ipeð hljómsveitinni
undanfarið og hefur honum
farið mjög mikið fram frá því
að maður heyrði í honum „í-
gamla-daga“. — Seinni hluta
sumarsins hafa verið „restra-
sjónir" í Sjálfstæðishúsinu og
hafa aðeins leikið fjórir af
hljómsveitinni. Hljómsv. átti
fimm ára afmæli i Sjálfstæð-
ishúsinu fyrr á sumrinu. —
Stefán Þorleifsson er hættur
í hljómsveit Óskars Cortes í
Ingólfs-café og kom Adólf
Theódórsson í staðinn fyrír
hann, en gagnstæð skipti áttu
sér einmitt stað í sömu hljóm-
sveit fyrir tæpu ári. — Nokkr-
ir yngri meðlíma F. í. H. hafa
æft knattspyrnu í frítímum
sinum í sumar og háð leiki
24 JazdUd