Ný saga - 01.01.1989, Page 78

Ný saga - 01.01.1989, Page 78
rannsóknir. Allt er það tengt kennslu minni í París. Um þrennt er að ræða: í fyrsta lagi eru rannsóknir á stjórnmálasögu. Fyrir nokkrum árum skrifaði ég grein um nauðsyn þess að hefja rann- sóknir á stjórnmálum miðalda. Gagnrýni annalista á hina hefð- bundnu stjórnmálasögu var að vísu réttmæt, en þeir gleymdu ýmsu og ég benti á að menn yrðu að hefja slíkar rannsóknir á nýjan leik, ekki á stjórnmála- mönnum og atburðum stjórn- mála (la politique) heldur á eðli og uppbyggingu stjórnmála (le politique). Með öðrum orð- um væri nauðsynlegt að kanna sögu valdsins og þar yrði að byrja á því að skilgreina og skýra hugtök. Hvað þetta varðar hef ég orðið fyrir verulegum áhrifum frá mannfræðingum, sem hafa lagt áherslu á hið tákn- ræna: formvenjur, tákn, reglur um hátíðahöld og þessháttar. Hér gætu rannsóknir á ís- lenskum fornritum sagt sitt af hverju, bæði athugun á sam- tímasögum og á íslendingasög- um, þó með það í huga að allt eru þetta bókmenntir. íslend- ingasögurnar eru eiginlega ennþá athyglisverðari en hinar vegna þess að þær voru skrifað- ar miklu seinna en atburðirnir sem þær lýsa eiga að hafa gerst. Því miður hef ég ekki nógu mikið vit á sögu íslands og ís- lenskum heimildum til að gefa nákvæmari ráð, nema að menn verða að líta á heildina og sjá samhengi hlutanna, athuga allar tiltækar heimildir og ekki gleyma sér í smáatriðum. Þarna yrði líka að koma til saman- burður við önnur lönd í Evr- ópu. Hin nýju viðhorf í stjórn- málasögu gera ráð fyrir því að saga stjórnmála sé um leið saga þjóðfélagsins. Þegar hugað er að íslandi á miðöldum er ljóst að landið var á hjara veraldar og mætti nefna það kristið ríki í út- jaðri, líkt og Spánn, Sikiley og ríki Slava. Þótt þessi þjóðfélög hafi verið ólík væri ákaflega at- hyglisvert að bera þau saman, einmitt með það í huga að þau voru á endimörkum kristinnar trúar. ísland hefur þó sérstöðu vegna þess að engin önnur lönd liggja að því. Samt myndi ég flokka landið með öðrum löndum sem voru í útjaðri Evrópu og bera það saman við þau. Það er einmitt skylda okkar sagnfræðinga á næstu árum að leggja meiri áherslu á saman- burðarsagnfræði en verið hefur. Georges Dumézil hefur lagt aðferðafræðilegan grunn að samanburði með rannsókn- um sínum á indóevrópskri menningu, við verðum að feta í fótspor hans. Hvað sjálfan mig varðar hef ég að undanförnu fengist við að rannsaka þá staði sem sköpuðu hugmyndafræði ráðamanna. Hin hefðbundna sagnfræði hafði áliuga á því hvar skjöl urðu til. Ég vil stækka viðfangs- efnið og kanna umhverfi þeirra staða sem varðveittu minning- una um menn og atburði, því segja má að þessir staðir hafi framleitt söguna. Þessa dagana og í þessum anda er ég að skrifa bók um Heilagan Loðvík, Saint Louis, sem var konungur Frakk- lands árin 1226-70. Þar reyni ég að sýna hvernig hægt er að skrifa nýja tegund af ævisögu og jafnframt skilja heilt þjóðfélag, heila öld, út frá hugmyndum manna. Við erum að fjarlægjast nauðhyggjuna og um leið verð- ur nauðsynlegt að kanna hlut- verk tilviljana og hendinga í sögunni, án þess þó að við för- um að skrifa óskynsamlega sögu. Svo vitnað sé í orð heim- spekingsins Merleau-Ponty þá hefur sagan ekki lengur eina til- tekna merkingu, en merkingu hefúr hún þrátt fyrir það. Ævi- saga Saint Louis verður því um leið íhugun um eðli og mögu- leika ævisögunnar. í stuttri grein í tímariti fýrir almenning, L’Histoire, hef ég meira að segja spurt spurningarinnar: var Saint Louis til? Auðvitað var hann til, en spurning sem þessi vekur upp aðrar, svo sem þá hvort heimildir sem við notum ljúgi ekki að okkur frá upphafi, frá því þær urðu til. Þetta er vand- inn við gagnrýni á heimildum sem beitt er við að skrifa ævi- sögur og sögu stjórnmála. Minningin um Saint Louis varð til á þremur stöðum. Fyrst og fremst í Saint Denis-klaustri í nágrenni Parísar, en líka meðal betlimunka, einkum dóminík- ana og fransiskana, sem höfðu náin tengsl við konung. í þriðja lagi erum við svo heppin að eiga ævisögu Saint Louis eftir náinn samstarfsmann hans, aðalsmanninn Joinville. Það er fyrsta ritið sinnar tegundar sem leikmaður skrifar, og það á frönsku. Þar birtist sjónarmið hinnar nýju menningar leik- manna á 13. öld. Saint Louis er athyglisverður af tveimur ástæðum. Annars vegar varð hann fljótlega fyrirmynd ann- arra konunga í Evrópu. Hins vegar var hann gerður að dýrl- ingi skömmu eftir andlátið. Ég legg mikið upp úr táknum og merkjum konungdómsins, og nefni athuganir mínar stundum til gamans sögulega stjórnmála- mannfræði. Þessu tengt eru rannsóknir á myndmáli miðalda sem ég stunda í samvinnu við nokkra kollega og vini. Við könnum framleiðslu, merkingu og sögu- legt hlutverk mynda, ekki að- Flestir sagnfræðingar stunda sagnfræði án þess að hugsa um það sem þeir eru að gera. Islendingasögurnar eru eiginlega ennþá athyglisverðari en samtímasögur vegna þess að þær voru skrifaðar miklu seinna en atburðirnir sem þær lýsa eiga að hafa gerst. 76
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Ný saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.