Morgunblaðið - 09.05.2011, Blaðsíða 17
17
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. MAÍ 2011
Osama Einn stuðningsmanna Þórs á Akureyri mætti í gervi Osama bin Ladens þegar liðið lék gegn Fram í úrvalsdeild karla í fótbolta á Laugardalsvelli á laugardag. Þór sigraði 1:0.
Árni Sæberg
Síðastliðinn
mánudag lét fjár-
málaráðherra þau
orð falla „að gerð
Vaðlaheiðarganga
nú sé bæði þjóð-
hagslega, umhverf-
islega og byggð-
arlega geysilega
góð ráðstöfun“. Sá
sem hér skrifar vill
taka undir það. Það
er þó rétt að minna
ráðherrann á að samkvæmt
svari þáverandi samgöngu-
ráðherra sumarið 2009 við fyr-
irspurn undirritaðs um arðsemi
framkvæmda kom í ljós að arð-
semi við gerð Vaðlaheiðarganga
var talin tæp 8%. Í sama svari
kom fram að arðsemi Suður-
landsvegar væri 16-21-28% eftir
útfærslum. Samkvæmt því er
sú framkvæmd u.þ.b. þrisvar
sinnum betri ráðstöfun ekki síst
ef tekið er tillit til tíðni alvar-
legra slysa og banaslysa.
Seinna í sömu umræðu sendi
ráðherra norðanmönnum góðar
kveðjur en Sunnlendingum tón-
inn. „Heimamenn (norð-
anmenn) hafa komið mjög
myndarlega að þessu verki með
söfnun hlutafjár og sýnt þannig
hug sinn og þeir kvarta ekki
undan því að vegtollur verði
látinn borga niður verkið, enda
munu þeir fá sín Vaðlaheið-
argöng en kannski er álitamál
um sumar aðrar framkvæmdir
sem menn (sunnanmenn) vilja
fá án þess að borga fyrir þær
(innan sviga og leturbreyting
undirritaðs).
Sama dag fékk undirritaður í
hendur svar frá
sama fjármála-
ráðherra um
tekjur af Vest-
urlandsvegi,
Reykjanesbraut
og Suðurlandsvegi
þar sem fram
kemur að mark-
aðar tekjur til
vegagerðar þar
eru 1-1,5 millj-
arðar á ári. Það
þýðir að án
veggjalda muni
markaðar tekjur duga til að
greiða niður framkvæmdina á
15 árum. Heildartekjur eru
milli 3-4 milljarðar á ári. Við-
bótarveggjöld upp á 1,5-2 millj-
arða á ári munu flýta upp-
greiðslu framkvæmdanna um
ca. 7 ár. Sem sagt, notendur
Suðurlandsvegar greiði allan
kostnað á 8 árum af fram-
kvæmd sem á að standa í 30-40
ár! – Geysilega sanngjarnt eða
hvað, fjármálaráðherra? Væri
ekki skynsamlegra að forgangs-
raða rétt.
Eftir Sigurð Inga
Jóhannsson
»… samkvæmt
svari þáverandi
samgönguráðherra
sumarið 2009 við fyr-
irspurn undirritaðs
um arðsemi fram-
kvæmda kom í ljós að
arðsemi við gerð
Vaðlaheiðarganga var
talin tæp 8%.
Sigurður Ingi
Jóhannsson
Höfundur er alþingismaður.
Geysilega góð
ráðstöfun
Frá því að grein mín
með gagnrýni á Schen-
gen-aðild Íslands birtist
í Morgunblaðinu 23. apr-
íl sl. hefur margt komið
fram sem rennir enn
frekar stoðum undir að
Íslendingar eigi sem
fyrst að losa sig úr viðj-
um Schengen-aðildar. Æ
fleiri eru að átta sig á að
eftirlitslaus umferð yfir
landamæri á Schengen-
svæðinu er himnasend-
ing fyrir skipulögð
glæpagengi sem hagnast
ótæpilega á eitur-
lyfjasmygli, þjófnaði og
mansali. Hér verða rakin
dæmi um aðvörunarorð
sem borist hafa nýverið
úr ýmsum áttum en sem
lítið heyrist um í íslensk-
um fjölmiðlum.
Norðurlönd og
Eystrasaltsríkin
Fyrir viku sendi Arne
Johannessen formaður
Landssambands lögreglumanna í Nor-
egi og varaformaður Sambands nor-
rænna lögreglumanna opið bréf til
Knut Storberget, dómsmálaráðherra
Noregs með kröfu um að tekin verði
hið fyrsta upp vegabréfaskoðun gagn-
vart Eystrasaltsríkjunum. Í erindi
sínu segir þessi trúnaðarmaður nor-
rænna lögregluþjóna að 80% ut-
anaðkomandi glæpastarfsemi á Norð-
urlöndum eigi upptök sín í þessum
löndum. Geri yfirvöld í Eystrasalts-
ríkjum ekki gangskör að því að upp-
ræta hjá sér glæpagengin hljóti að
verða að endurskoða Schengen-
sáttmálann frá grunni.
Arne Johannessen er
þekktur fyrir einarðan
málflutning og hann er
eins og norski dóms-
málaráðherrann félagi í
Verkamannaflokknum.
Hvað segir Europol
um Balkanríkin?
Miðvikudaginn 4. maí
sendi Europol, lög-
reglustofnun ESB, frá sér
skýrslu um skipulagða
glæpastarfsemi með sér-
stöku tilliti til fyrirhug-
aðrar aðildar Búlgaríu og
Rúmeníu að Schengen.
Sem flestir ættu að kynna
sér þessa skýrslu Euro-
pol sem er vægast sagt
afhjúpandi fyrir afleið-
ingar þess að afnema
landmæraeftirlit. Þar er
rakið hvernig þræl-
skipulagðir glæpahópar
nýta sér óhindrað ferða-
frelsi innan Schengen-
svæðisins í samspili við
frjálst vöruflæði og sam-
skiptamöguleika á Net-
inu. Balkanlöndin eru í sí-
vaxandi mæli notuð til
eiturlyfjasmygls í stórum stíl, m.a. á
kókaíni frá Rómönsku-Ameríku. Aðild
Búlgaríu og Rúmeníu að Schengen
myndi stækka til muna landamæri
svæðisins í austurátt með auknum
möguleikum á hverskyns smygli og
mansali. Tengsl á milli glæpahópa
hafa styrkst til muna að undanförnu
og þeir nýta sér allar finnanlegar
smugur í auðgunarskyni.
ESB í miklum vandræðum
Í vikunni brást framkvæmdastjórn
ESB við sívaxandi gagnrýni innan að-
ildarríkja á Schengen-kerfið vegna
skipulagðrar glæpastarfsemi og flótta-
mannastraums. Sænski kommissarinn
Cecilia Malmström sendi frá sér
skýrslu 4. maí þar sem settar eru fram
hugmyndir um viðbrögð við kröfum
margra um breytingar á Schengen-
samningnum. Samkvæmt gildandi
ákvæðum geta aðildarríkin aðeins
gripið til eftirlits á innri landamærum
ef mikil hætta er talin á ógnun við al-
mannareglu (public order). Aðeins ör-
fá dæmi eru um slík inngrip og fram-
kvæmdastjórn ESB reynir að halda í
slíkt sem algjöra undantekningu og að
tilskilið sé samþykki hennar fyrirfram.
Jafnframt er rætt um að efla gæslu á
ytri landamærum svæðisins og sá
möguleiki nefndur að koma upp bland-
aðri löggæslu manna frá ýmsum aðild-
arríkjum. Gert er ráð fyrir að afstaða
verði tekin til þessara tillagna á leið-
togafundi ESB í lok næsta mánaðar.
Hver er afstaða
íslenskra stjórnvalda?
Það voru mikil mistök frá upphafi
að binda Ísland við Schengen-
samninginn, ekki síst eftir að hann
varð órjúfanlegur hluti af ESB. Sem
eyland höfum við ekkert nema skaða
af því að bindast þessu regluverki
meginlandsríkja og halda hér uppi
landamæravörslu fyrir Evrópusam-
bandið. Aðvaranir og kröfur Sam-
bands norrænna lögregluþjóna eru
orð í tíma töluð og er þó aðstaða
Skandínava með samliggjandi landa-
mæri önnur en okkar. Íslensk stjórn-
völd geta ekki dregið það lengur að
kveða upp úr um afstöðu sína til
Schengen-aðildar. Þar stendur valið
milli öryggishagsmuna íslensks al-
mennings eða að halda áfram sem
fjarstýrður tengivagn ESB-kerfisins.
Eftir Hjörleif
Guttormsson
»Æ fleiri átta
sig á að eft-
irlitslaus umferð
á Schengen-
svæðinu er
himnasending
fyrir glæpagengi
sem hagnast á
eiturlyfjasmygli,
þjófnaði og
mansali.
Hjörleifur Guttormsson
Höfundur er náttúrufræðingur.
Schengen skapar skjól
fyrir glæpagengin