Svart á hvítu - 01.10.1978, Blaðsíða 5

Svart á hvítu - 01.10.1978, Blaðsíða 5
5 húsinu verður ekki lokað þó þar séu settar upp misheppnaðar sýningar, en svona leikhópur á sér ekki viðreisnar von, nema sýningar hans réttlæti þennan barning utan stofnana. Ef þær eru verri, eða bara eins og í stofnana leikhúsunum, þá er bara eins gott að vera þar inni. Þessi vitneskja fólksins sem vinnur við leikhópinn um að allt stendur og fellur með því sjálfu, hún skapar svolítið aðra afstöðu til vinnunnar. Fyrir utan þaö þá verða leikararnir og leikstjórarnir að vinna öll störf, þeir kynnast öllu ferlinu. Það er ekki hver lokaður inni í sínu starfi og hefur enga innsýn í, eða áhuga á starfi næsta manns. Þaó er ekki útilokað að slík stemning geti skapast í hefðbundnu leikhúsi ef þar velst saman góður hópur, en það skapast aldrei þessi ábyrgðartilfinning sem hlýtur að ríkja í frjáls- um leikhóp. Hvenær var Alþýðuleikhúsið stofnað? Arnar: Þaö var 4. júlí 1975. Aðdragandinn var eiginlega sá að þennan vetur á Akureyri hafði fólk tekið að hittast, svona kunningjahópur. Og í stað þess að verða Alkóhólismanum að bráð, þá ákváðum við að koma saman á laugardagskvöldum og ræða leikhúsmál. Og jafnvel búa til þætti sem hugmyndin var að sýna svo á 1. maí eða einhverri skemmtun. Þennan vetur vorum við Þórhildur og Þráinn Karlsson öll fastráðin við Leikfélag Akur- eyrar. Þar fór allt í háaloft undir vorið og við fórum frá leikhúsinu. Þarna voru komnir leikarar. Nú, og höfundar voru á hverju strái og alls konar hæfi- leikafólk og útkoman var stofnun Alþýðuleikhúss- ins. Nú ekki var verkefnaskráin burðug til að byrja með. Helst vildum við auðvitað vera með íslensk verk og eitthvað sem kæmi samtímanum við. Við byrjuðum að vinna hugmyndir í sambandi við mengunarmál og fleira. Síðan tók Böðvar Guð- mundsson verkið yfir og skrifaði það, eins og hans er von og vísa, á nokkrum dögum. Og úr því varð Krummagull sem síðan var frumsýnt austur á Nes- kaupstað í mars 1976. Skollaleik frumsýndum við hins vegar á Borgarfirði eystra. Við höfðum gert þrjár tilraunir veturinn áður til þess að komast þangað með Krummagull, en þær mistókust allar. Við festum okkur eini sinni upp í Dyrfjöllum í kol- brjáluðu veðri. Svo það varð að bæta þeim þetta upp. Þórhildur: En þeim fannst það mjög skrýtið að við skyldum frumsýna þar. Þó við viljum vera mjög göfug og láta landsbyggóina ganga fyrir þá vekur það visst vantraust. „Af hverju er bara verið að sýna þetta úti á landi, er þetta ekki nógu gott fyrir Reykjavík?" Aðsóknin var svona upp og ofan. Ef þú t. d. kemur í lítið þorþ og það er mikill fiskur eða togari rétt að koma inn, þá er leikhúsið ekkert sér- lega spennandi. Arnar: En ef stóru leikhúsin fara út á land með verk sem búið er að ganga í Reykjavík í heilan vetur Úr Krummagulli: ,, Maóurinn er jú svo miklu vitrari en viö." og auglýsa mikið upp, þá er aðsóknin tryggð. Og að maður tali nú ekki um ef í sýningunum eru þjóð- kunnir listamenn sem trekkja. Er það svo vegna fjárskorts sem starfsemi hóps- ins leggst niður? Þórhildur: Ekki eingöngu. Það er mjög erfitt fyrir svona lítinn hóp að standa í þessu árum saman. Þetta var meira og minna fjölskyldufólk og þaö fylgdu þessu mikil ferðalög. Þetta var sérstaklega erfitt fyrir þá sem voru fyrir norðan. Reykjavík er eini staðurinn þar sem hægt er að vera um kyrrt enda vorum við hér lengi. En þó Alþýðuleikhúsið hafi gengið fjárhagslega á meðan verið var að sýna, þá drógum við alltaf skuldahala á eftir okkur, sem stafaði af æfingatímabilinu. Það var ekki hægt fyrir svona fámennan hóp að æfa og sýna á sama tíma. Þegar fjármál voru gerð upp um áramót, þá voru nokkrar milljónir í skuld og okkur óaði við því að bæta við þann hala. Svo það var ákveðið að láta staðar numið í bili. En það var aldrei meiningin að loka sjoppunni endanlega. Það var náttúrulega SVART Á HVÍTU
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Svart á hvítu

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Svart á hvítu
https://timarit.is/publication/821

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.