Svart á hvítu - 01.10.1978, Blaðsíða 60

Svart á hvítu - 01.10.1978, Blaðsíða 60
XIV Meginhlutverk listarinnar hefur alla tíð verið að skapa þörf sem ekki varö fullnægt fyrr en síðar. Saga allra listgreina geymir umbreytingaskeið þegar ákveðin list- form reyna að knýja fram áhrif sem krefjast breyttrar tækni, þ.e.a.s. nýs listforms. Þær öfgar og sá listræni vanþroski sem þannig verður til, einkum á svonefndum hnignunarskeiðum, eiga raunverulega rætur að rekja til auðugustu skeiöa listasögunnar. Á undanförnum árum hefur dadaisminn geymt gnægð af slíkri villimennsku. Það er fyrst nú að við sjáum hvað í honum bjó: reynt var að ná fram í málverkum (og bókmenntum) þeim áhrifum sem áhorfendur sækja nú til kvikmyndanna. Þegar vakin er algerlega ný þörf fer hún ævinlega fram úr þeim markmiðum sem sett voru í upphafi og ryður þannig nýjum listformum braut. Það á við um dadaismann að því marki að hann fórnaði þeim markaðsgildum sem í svo ríkum mæli einkenna kvikmyndina fyrir göfugari mark- miö — sem voru honum jafnvel ómeövituð. Dadaistunum var meira í mun að forða verkum sínum frá því að verða mönnum tilefni til djúprar íhugunar en að selja þau og niðurlægðu þau í því skyni. Ljóö þeirra eru ,,orðasalat“, sem sett er saman úr grófyrðum og öllum hugsanlegum úrgangsefnum tungunnar. Sama á við um málverkiö; á þau bættu þeir hnöppum og farmiðum. Ætlunarverk þeirra heppnast: að eyða áru sköpunarverka sinna á miskunnarlausan hátt; í listsköpuninni eru þau brenni- merkt sem fjöldaframleiðsla. Öhugsandi er að íhuga og meta mynd eftir Arp eða Ijóð eftir August Stramm á sama hátt og málverk eftir Derain eða Ijóð eftir Rilke. Samhliöa hnignum borgarastéttarinnar varð íhugun andfélagslegt hátterni, það varð félagsleg starfsemi að dreifa athygl- inni andspænis slíkri djúphygð. Dadaisminn bauð raunar upp á all ofsafengna dægrastyttingu með því að gera listaverkin að hneykslunarhellu. Eitt var það sem lista- verkið þurfti að geta gert. ögrað hinu viðtekna. í höndum dadaistanna þróaöist listaverkið úr töfrandi augnayndi eða sefjandi hljómum í skot, sem hitti áhorfandann. Listaverkið varð áþreifanlegt. Með þessu var brautin rudd fyrir kvikmyndina: afþreyingarþættir hennar eru fyrst og fremst áþreifanlegir, byggjast á sviðsbreytingum og stöðugt nýjum myndskeiðum sem dynja viðstööulítið á áhorfandanum. Berum saman kvikmyndatjaldið og striga málverksins. Málverkiö býður áhorfandanum til íhugunar, frammi fyrir því getur hann horfið á vit hug- renningatengsla. Það getur hann ekki þegar hann horfir á kvikmynd. Augað hefur varla numiö það sem á tjaldinu er þegar það breytist; kvikmyndin nemur aldrei staðar. Duhamel, sem hefur megna skömm á kvikmyndinni og gerir sér enga grein fyrir mikilvægi hennar en hefur skilning á ýmsu varðandi formgerð hennar, lýsir ástand- inu á þessa leið: ,,Ég get ekki lengur hugsað það sem ég vil hugsa. í stað hugsanna minna eru komnar myndir á hreyfingu".19 Hugrenningatengsl áhorfandans eru sífellt rofin af óvæntum breytingum þessara mynda. í þessu eru fólgin sláandi áhrif kvikmyndarinnar, þau krefjast aukins snarræðis hugans. Dadaisminn klæddi þessi áhrif í siðferðilegan búning — kvikmyndin gat með tækni sinni gert þau beinlínis líkamleg.20 XV Fjöldinn er sá frjósami jarðvegur sem fæðir nú af sér nýja afstöðu til listaverka. Megind verður að eigind. Vegna aukins fjölda þátttakenda hefur eðli þátttökunnar breyst. Enda þótt þessi nýi þátttökumáti hafi fyrst haft á sér næstum ósæmilegt yfirbragð má það ekki rugla rannsakandann í ríminu. Sumir hafa þó deilt á þennan yfirborösþátt af miklum tilfinningahita. Duhamel er sá þessara manna sem gripið hefur hvaö sterkast til orða. Honum er einna mest á móti skapi þessi nýja þátttaka sem kvikmyndin laðar fram hjá fjöldanum. Hann kallar kvikmyndina ,,dægradvöl úrþvætta, afþreyingu þeirra ó- menntuðu, aumu og útníddu vesalinga sem áhyggjurnar eru að ganga af dauðum . . . sjónarspil sem engrar ein- beitingar krefst og gerir ekki ráð fyrir heilli hugsun . . . sem hvorki lýsir upp hjartað né kveikir nokkra von nema drauminn um að verða einn góðan veðurdag „stjarna" í Los Angeles".21 Kjarni þessara orðaeru greinilega þær fornu harmatölur að fjöldinn leiti afþreyingar en listin krefjist einbeitingar af áhorfandanum. Það er útþvæld tugga. Eftir stendur á hinn bóginn spurningin um þaö hvort hér sé fundinn grundvöllur fyrir rannsóknir á kvik- myndum. Það þarfnast nánari athugunar. Afþreying og einbeiting eru andstæður sem lýsa má á eftirfarandi hátt: Maður sem einbeitir sér að listaverki hverfur inn í það. Hann hverfur inn í það á sama hátt og segir af í sögninni um kínverska málarann sem hvarf inn í fullunna mynd sína. Gagnstætt þessu gleypir fjöldinn listaverkin sér til afþreyingar eins og skýrast kemur fram í sambandi við byggingar. Byggingarlistin hefur alltaf verið Ijósasta dæmið um þau listaverk sem notið er á þann hátt að menn stytta sér sameiginlega stundir við þau. Lögmál þeirrar nautnar eru einkar lærdómsrík. Allt frá forsögulegum tíma hafa byggingar veriö föru- nautar mannsins. Ótal listform hafa þróast og horfið af sjónarsviðinu. Harmleikurinn á upphaf sitt og endi meðal forn-grikkja enda þótt form hans sé endurvakið öldum seinna og öðlist þá nýtt líf. Söguljóðið, arfleifð mannsins frá örófi alda, söng sitt síöasta í lok endurreisnarskeiðs- ins í Evrópu. Altaristöflur (Tafelmalerei) eru sköpunar- verk miðalda og engin vissa fyrir því að þær haldi velli um ókomnar aldir. Þörf mannsins fyrir skjól er á hinn bóginn eilíf og byggingarlistin hefur því aldrei verið fánýti. Hún á sér lengri sögu en nokkur önnur listgrein og því er það afar mikilvægt aö setja sér áhrif hennar fyrir sjónir þegar menn reyna að gera sér grein fyrir afstöðu fjöldans til listar. Byggingum er veitt viðtaka á tvennan hátt. Þær eru bæði notaðar og skynjaðar; eða með öðrum orðum snertar og séðar. Ekki er þó hægt aö skilja þessa viðtöku bygginga með því að miða viö þá einbeitingu að frægum byggingum sem svo algeng er hjá ferðamönnum. Þegar um byggingar er að ræöa er enginn þáttur sem sam- svarar sjónrænni íhugun. Þar ræður siðvenja jafnvel meiru en athyglin. Þegar byggingarlist er annars vegar er jafnvel sjónskynjunin rígskoröuð af venju. Það er miklu algengara að viðfangsefnið sé skoðað á tilviljunar- kenndan hátt en með spenntri eftirtekt. Þessi viðtekna afstaða til byggingarlistar getur öðlast helgan rétt við tilteknar aðstæður. Orsökin er sú að þau viðfangsefni sem við skynfærum mannsins blasa á sögulegum tíma- mótum verða ekki leyst með sjónskynjun einni saman, þ.e.a.s. íhugun. Þau leysast smám saman með notkun, með vana. Það þarf ekki einbeitingu til að venjast einhverju. Að geta leyst viss verkefni þótt hugurinn sé dreifður, sýnir að lausnin er orðin að vana. Sú dreifing hugans sem listin sér fyrir stjórnar því með duldum hætti í hve ríkum mæli unnt er að leysa ný viðfangsefni meö skynreynsl- unni. Þar sem einstaklingar hafa þar að auki tilhneigingu til að víkja sér undan slíkum viðfangsefnum kemur það í hlut listarinnar að ráöast til atlögu viö hin mikilvægustu og torleystustu þeirra á þeim vettvangi sem hún getur skipulagt fjöldann. Það gerir hún raunar á vorum dögum með kvikmyndum Listneysla í formi dægrastyttingar verður æ algengari á öllum sviðum listarinnar og kvik- 58 SVART Á HVÍTU
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Svart á hvítu

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Svart á hvítu
https://timarit.is/publication/821

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.