Birtingur - 01.01.1967, Qupperneq 6
Meðal þessara ljóðskálda er jafnvel þýðandi
og sérfræðingur í klassiskum bókmenntum
Kínverja, Pertti Nieminen.
Nú horfir allt öðruvísi við í finnskum ljóða-
bókmenntum. Mörg ljóðskáld frá síðasta ára-
tug, t. d. Paavo Haavikko og Pentti Holappa,
hafa lagt ljóðagerð á hilluna og snúið sér að
prósa. Aðrir hafa fengið vaxandi áhuga á leik-
húsinu, t. d. Eeva-Lisa Manner. Helvi Juvon-
en lézt árið 1959. Ný skáldakynslóð hefur
komið fram á þessum árum. Hún er sundur-
leitari og fágaðri en fyrirrennararnir og á sér
alþjóðlegri rætur. Pentti Saarikoski, hið gáf-
aða enfant terrible finnskrar Ijóðagerðar,
hefur skapað sér upprunalegt og óbrotið mál-
far í skrifum sínum, sem minnir lítið eitt á
bandarísku beat-skáldin. Jafnvel í ljóðum
hans er stríðið fjarlæg sviðsmynd, eins og Ijóst
verður í upphafsljóði ljóðasaíns hans Mitá
tapantu todella? (Hvað gerist raunveru-
lega?) 1962:
þetta hófst tveimur árum fyrir stríðin
í þorpi sem seinna mun tilheyra
Sovétríkjunum
úr stríðinu man ég aðeins eftir eldunum
þeir voru stórkostlegir
engir slíkir eldar nú til dags
ég hleyp að glugganum í hvert sinn sem
brunabíllinn ýlfrar
en eldar eru mistök
engar dáðir eru drýgðar
ég ferðaðist um alla bernsku mína.
Ásamt Saarikoski virðist önnur lykilpersóna 7.
tugsins vera Váinö Kirstiná, sem með komu
sinni endurvakti þjóðsöguna um dadaismann.
Kirstináá hefur bæði ort „konkret“ og „pop-
lyrisk“ ljóð, stundum líklega allt eins mikið í
hálfkæringi eins og í fullri alvöru. Hvað sem
því líður, þá er hann fulltrúi þess allra ný-
tízkulcgasta í finnskri ljóðagerð, sem hagnýtir
sér hinn hversdagslega efnivið og reynir að
afmá mörkin milli listgreina. Finnsk ljóðagerð
er í nánum tengslum við tónlist og leikhús;
athyglisverðar tilraunir á landamærum þess-
ara þriggja listforma hafa verið gerðar, og
hefur Helsinki stúdentaleikhúsið haft þar for-
göngu.
Endurvakning hins óbundna máls eftir stríð
gekk miklu hægar. Fyrstu athyglisverðu eftir-
stríðsskáldsögurnar sýndu vonbrigði og svart-
sýni þess tímabils. Til dæmis endurspeglaði
alþjóðlega metsölubókin Egyptinn eftir
Mika Waltari mjög sterklega hið almenna
hugarástand ársins 1945, þegar hún kom út.
(Minnumst þess, að Finnland dró sig út úr
styrjöldinni haustið 1944 og greiddi þungar
stríðsbætur til Sovjetríkjanna undir ströngu
4
HIRTINGUR