Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2004, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2004, Blaðsíða 17
DV Fréttir MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 2004 1 7 Fingrafaralesari á lyklaborðið Ertu orðinn leiður á að muna leyniorðin sem veita þér aðgang að hinu og þessu í tölvunni? Nú hefur tölvufyrirtækið Microsoft hannað nýtt lykla- borð fyrir tölvur með innbyggðum fingra- faralesara sem gerir það að verkum að not- andinn þarf ekki að gefa upp óteljandi leyniorð til að komast leiðar sinnar um hugbúnaðinn eða á netið. Microsoft kynnti einnig nýja þráðlausa mús sem sérhönnuð er fyrir fartölvur. Þegar lyklaborðið kemur á markað í Bandaríkjunum er talið að það kosti milli 4.000 til 8.000 íslenskra króna og þráðlausa fartölvumúsin rúmar 3.000 íslenskar krónur. Nýjasta vitleysan frá Japan Konur fagna hljóðprinsessunni Hljóðprinsessan, eða Sound Princess, er nýtt apparat sem er að slá í gegn í Japan þessa dagana.Tækið hefur þann undarlega tilgang að búa til niður- sturtunarhljóð á salernum, einkum kvennasalernum. Japanskar konur kváðu afsaplega óttaslegnar þegar þær sitja á skálinni og beinist ótti þeirra einkum að því að stöliur þeirra í næstu klósettklefum heyri einhver óviðurkvæmileg hljóð. Hljóðprinsessan bjargar þessu þvi ekki þarf annað en að styðja á hnapp og ómar þá „niðursturtun" úr klefanum.Tækið hefurauk- inheldur þann góða kost að spara vatn því áður voru japanskar konur sýknt og heilagt að sturta niður til þess að fela búkhljóðin. Ekki hafa borist tíðindi um að Hljóðprinsessan verði flutt til Vesturlanda en það er aldrei að vita. Nóbelsverðlaun í gríni eða lg Nobel veitt fyrir óvenjulegar uppfinningar reglunni er fólki með öllu óhætt að borða mat sem fellur á gólfið ef það nær að stinga honum upp í munninn á innan við fimm sek- úndum. Clarke komst að því að 70% kvenna fylgja þessari reglu og 56% karlmanna. Það kemur heldur ekki á óvart að reglan virð- ist fremur eiga við þegar sælgæti dettur í gólfið en grænmeti. Af öðrum athyglisverðum verðlaunum má nefna læknis- fræðinóbelinn fyrir skýrslu um áhrif bandarískrar sveitatónlistar á sjálfsmorðstíðni og svo auðvitað friðarverðlaunin sem féllu í skaut hins japanska Daisuke Inoue of Hyogo fyrir að finna upp karókítæknina - enda hafi söng- vélin haft góð áhrif á umburðar- lyndi manna og vegna hennar hafi þeir lært að umbera annað fólk betur. List að hætti Nóbels islendingar gefa Japönum lltið eftir I karókl og nýtur þessi listgrein vinsælda hérlendis. Feðgarnir, Frank og Donald Smith, fengu háðungarnóbelinn í verkfræði fyrr í vikunni enda þyk- ir framlag þeirra feðga allmerki- legt. Frank og Donald fundu nefnilega upp gagnlega aðferð til að greiða yfir skalla án þess að bæta við utanaðkomandi hári. Þetta var árið 1975 og gengu feðgarnir svo langt að fá einka- leyfi á hárgreiðslunni. Það er nefnilega alls ekki sama hvernig greitt er yfir skallann og snýst að- ferð feðganna í grófum dráttum í því að hárinu er skipt í þrjá parta - sem síðan eru greiddir hver yfir annan þannig að skallinn verður ósýnilegur. Hin svokölluðu Ig-nóbelsverð- laun voru afhent í hinum virta Harvard-háskóla í Massachusetts í Bandaríkjunum og voru „alvöru" nóbelshafar fengnir til að afhenda verðlaunin. Forráðamenn Ig segja tilgang verðlaunanna að vekja athygli á vísindum og einnig óvenjulegum uppgötvunum. Fleiri Nóbelar voru afhentir og meðal verðlaunahafa var Jillian Clarke sem fékk „heilsunóbelinn" fyrir kenningu sína um „fimm sekúndna regluna". Samkvæmt SkallayfirgraöslMi og haróhf fá Móbel ► Sendu SMS skeytið JA DBD á númerið 1900 °S þú gætir unnið. Vinningar eru miðar á myndina, DVD myndir og fleira 9. hver vinnur. Vinningar verða afhendir hjá BT Smáralind. Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið (Brennó) Óvæntasti grínsmeiiur ársins For beint á toppinn í USA FRUMSÝND I.OKT.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.