Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2004, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2004, Blaðsíða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 2004 Síðast en ekki síst DV Bubbi með sérsmíðuð gleraugu „Það er alveg laukrétt hjá Eiríki Jónssyni. Ég er pjattaður. En að halda að ég sé með bensínstöðvar- gleraugu segir mér það eitt að Eirík- ur þekkir ekki ‘kvaletístöff’ þegar hann sér það. Þekkir ekki muninn á kvalíteti og rusli," segir Bubbi Morthens, fjallhress að vanda. í fjölmiðlapistli sem birtist í gær skrifaði Eiríkur um Idol-keppnina og það að hann fengi ekki betur séð nrjgKn en Bubbi Morthens væri LUiXl með bensínstöðvargler- augu. „Bubbi er pjattaður að eðlis- fari. Það sést. Því kom á óvart að sjá hann með bensínstöðvargleraugu. Bjóst við meiri stæl úr því sem orðið var. Armani eða Prada. Jafnvel Paul Smith.“ Þessu mótmælir Bubbi harðlega og tekur sérstaklega fram að ekki sé hart í ári hjá honum. „Þetta eru sér- smíðuð gleraugu. Smfðuð fyrir mig af gleraugnabúð í Kringlunni. Óliver-umgjörð. Titangleraugu. Bubbagleraugu sem breyta um birtu eftir því hvar þú ert staddur. Glær innandyra en í sól verða þau svört. Sérpöntuð, innflutt gler.“ Bubbi Morthens Segir Eirík ekki þekkja muninn á kvaletí-stöffi og rusli. • í Stúdentablaðinu, sem fylgdi Fréttablaðinu í gær, er ítarlegt drottningarviðtal við menntamálaráðherr- ann Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur. Þar fjallar hún um sam- viskubit hinnar úti- vinnandi móður og gagnrýnir stjórnarandstöðuna í menntamálum. Hún talar líka um að hún ætli ekki að skipta sér af málefnum sem brenna heitast á stúdentum, sem er lestraraðstaða þeirra í Þjóðarbókhlöðu. Stúdent- ar eru margir undrandi á því að slíkt drottningarviðtal komi fram í málgagni þeirra þegar nýjasta Síðast en ekki síst ákvörðun menntamálaráðherrans sé að sækja fé í vasa stúdenta til að mæta niðurskurði í fjárfram- lögum frá ríkinu til skólans... • Það vakti mikla athygli fólks þegar Þórólfur Ámason borgarstjóri ferð- aðist á almennu farrými á menn- ingarhátíðina í París á meðan ráð- herrarnir Sturla Böðvarsson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sátu með sínu ráðuneytisfólki á Saga Class. Þetta hefur orðið til þess að farrými sem almenningur ferðast á hefur fengið nýtt nafn. Nú fljúga menn annað hvort á Saga Class eða einfaldlega á Þórólfi... • Magnús Þór Hafsteinsson 1 þingflokksformaður Frjálslynda flokksins neitar því á vefsvæðinu Málefnin.com að vera sá sem upplýsti DV um efni stefnuræðu Halldórs Ásgrfms- sonar forsætisráð- herra. Tilefnið er að í skoðanakönn- un á vefnum þótti Magnús líklegastur til að vera sá sem lak. Aðrir fjöl- miðlar höfðu líka áhuga á að komast yfir stefnuræðuna. Meðal annars hringdi fréttamaður Sjón- varpsins í þingmenn og reyna að svæla út ræðuna... FLOTT ræða hjá Davíð Oddssyni við eldhúsdagsumræður á Alþingi í fyrrakvöid þar sem hann sættist bæði við stjórnarandstöðuna og Ólaf Ragnar Grlmsson forseta. „Við emm að poppa upp búðina og fá skjól fyrir norðanátt- inni," segir Stefán Halldórsson sem rekur verslunina Skerjaver í Skerjafirði ásamt eiginkonu sinni, Hjördísi Andrésdóttur. Hafa þau sótt um leyfi til að byggja skyggni yfir aðalinngang verslunar- innar svo og svalir á effi hæð þar sem þau búa. „Þetta gengi ekki nema af því að við búum uppi. En hér er allt tU alls. AUt ffá skóreimum og upp í hárgel og aUt þar á milli," segir Stefán sem í raun er slökkvUiðsmaður og sinnir búðinni í hjáverkum. Þar stendur Hjördís vaktina aUa daga, enda Stefán tUtölulega nýkom- inn inn í ltf hennar. Vinkona Hjördísar rak búðina þar tU fyrir fjór- um árum: „Hún fékk barn í magann og þá tók konan mín við," segir Stefán. En Stefán lætur sér ekki nægja að vera í slökkvUiðinu. Hann rekur einnig hoppkastalaleigu í Skerjafirðinum og það kunna við- skiptavinimir líka að meta: „Sumarið er svo stutt að þetta er ekki nema í þrjá mánuði á ári. Nú er ég að taka loftið úr þeim og koma fyrir í skúr tU geymslu," segir Stefán sem bindur miklar vonir við skyggnið sem byggt verð- ur fyrir ffaman innganginn í Skeijaveri. „Við vUjum að viðskiptavinum okkar líði vel. Þetta er frábært fóUc sem hér býr og er vant því að hafa verslun á horninu. Líklega er Skerjaver elsta starfandi kaupfélagið í landinu því hér var KRON strax árið 1939 þegar húsið var byggt." Hjördís og Stefán skrifa hjá öUum sem þess óska og taka ekki vexti fyrir: „Vextina okkar uppskemm við í traustum viðskipatvin- um sem muna aUtaf að borga. Skerjaijörðurinn er eins og þorp í höfuðborginni og samskipti fólks taka mið af því," segir Stefán. Hiördís og Stefán i Skerjaveri Skrifa hjá ollum og taka ekki vexti Iþorpmu höfuðboginni. stttm Hl ■■'i»t**** Krossgátan Lárétt: 1 könnun,4 vigt- uðu, 7 vegna, 8 dreifir, 10 kvabb, 12 kartöflu- stappa, 13 tormerki, 14 þaut, 15 hátíð, 16 glufa, 18 fffl, 21 æviskeiðið, 22 geð,23 söngur. Lóðrétt: 1 ágjöf, 2 reyki, 3 fragt, 4 hylli, 5 hugar- burð, 6 grjót, 9 góði, 11 furða, 16 rölt, 17 diki, 19 fljótið, 20 reið. Lausn á krossgátu 'II! 0Z 'eue 61 'usj L l 'I9J 91 'Jnpun 11 'paeöe 6 'gjn 9 'e.19 g 'JlpiæsuiAy'pieföujjejE'esgz'snd t útajgog -|nej££'pun| 3í'u|||3 tz'uyp 8L 'el|J 91 'I9Í S t 'ippse y 1 '6uæg £ 1 'snuj z l 'gneu 0 L 'J|?s 8 'J|>ies l 'n69A y 'i9Jd 1 :»aje-| Veðrið r

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.