Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.04.1995, Page 1

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.04.1995, Page 1
FRETTABREF 7ÆTTFRÆÐIFÉ L AGSIN S ISSN 1023-2672 4. tbl. 13. árg. - apríl 1995 "Hver var hann, ungi pilturinn, hann frændi minn, sem eitt sinn sat með skrifpúltið sitt á hnjánum og páraði drauma sína og vonir" Gamlir hlutir glæða ættfræðina lífí og tengja okkur fortíðinni á áþreifanlegan hátt. Ættargripir af ýmsu tagi prýddu sýninguna "Ættfræðinnar ýmsu hliðar", sem Ættfræðifélagið stóð fyrir í tilefni 50 ára afmælisins í febrúar. Sjá bls. Púlt þetta er smíðað af Jóhanni Hannessyni, Bjarneyjum á Breiðafirði um 1880. Fyrsti eigandi þess var Soffía Gestsdóttir, síðar húsfrú á Staðarfelli á Fellsströnd, f. 1866 en hún fékk púltið í fermingargjöf. Seinna gaf hún fóstur- syni sínum og móðurbróður mínum Magnúsi Zophaníasi Guðfinnssyni, f. 1898, púltið en eftir að hann drukknaði við Hjallaeyjar árið 1920 fengu for- eldrar hans, Guðfinnur Jón Björnsson og Sigurbjörg Guðbrandsdóttir (afi minn og amma) það. SonurþeirraGestur Guðfinnsson, síðar skáld og blaða- maður, hafði það til umráða á unglings- árunum en á sumardaginn fyrsta árið 1953, þegar ég var tíu ára gömul, gaf Sigurbjörg amma mín mér það í sumar- gjöf ásamt sykurtöngum og kleinujárni og voru þetta fyrstu ættargripirnir sem ég eignaðist. (Guðfinna Ragnarsdóttir)

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.