Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.1998, Page 9
Formálar 7
til útgáfunnar. Mikið starf hefur verið unnið varðandi upplýsingaöflun um íslenska tækni-
fræðinga, unnið hefur verið að gerð gagnagrunns sem mun nýtast við útgáfu sérstaks Tækni-
fræðingatals síðar meir. Skráðar verða upplýsingar um tæplega 1300 íslenska tæknifræð-
inga.
Samstarf TFI og Tækniskóla Islands í menntunarmálum er mikið og gott. TFI veitir ár-
lega nokkrum nýútskrifuðum tæknifræðingum viðurkenningar fyrir áhugaverð lokaverkefni.
Mikilvægt er að vel takist til með stofnun Tækniháskóla Islands og þess verði meðal annars
gætt að aðfaranám að skólanum verði byggt upp á þann hátt að iðnaðarmenn fái aðgang að
skólanum á sama hátt og nú er. Félagið þarf einnig að vera vakandi fyrir því hvar áherslur í
tækninámi skuli vera hverju sinni. Og vera reiðubúið til skoðanaskipta um þau mál með til-
lögugerð.
Samstarf við VFÍ og SV hefur skilað árangri sem byggist á samtakamætti félaga með
sameiginlegum áherslum. Með samrekstri félaganna næst fram hagræðing sem er félags-
mönnum til góðs. Nauðsynlegt er að vilji meirihluta félagsmanna sé hafður að leiðarljósi við
markmiðssetningu og áætlanagerð félagasamtaka eins og TFÍ.
Þó að framtíðin sé björt má hvergi slaka á og skal þess í hvívetna gætt að rekstur og
ímynd félagsins sé þannig að félagsmann geti verið stoltir af og sjái tilgang með aðild sinni
að félaginu.
Inngangur ritstjóra
Verkfræðingafélag íslands og Tæknifræðingafélag íslands hafa
starfað farsællega saman að útgáfumálum í fjögur ár samfleytt. Út-
gáfumál félaganna ná fyrst og fremst til fréttablaðsins Verktækni og
arbókarinnar. Útgáfa beggja þessara rita er nú í föstum skorðum og
er undirrituðum ekki kunnugt um neinar óánægjuraddir.
Arbók þessi, sem er sú tíunda í röðinni og sú fjórða sent er
geíin út sameiginlega á vegum VFÍ og TFÍ, er með svipuðu sniði
°g bók síðasta árs. Fyrri hluti bókarinnar er um félagsmál beggja
félaganna. Fyrst í félagsmálahlutanum kemur skýrsla VFÍ, því
næst skýrsla TFI og þar á eftir kafli um sameiginlegan rekstur fé-
laganna. Skýrslurnar hefjast á skýrslum formanna félaganna, sem
þeir hvor um sig fluttu á aðalfundi félaganna. Á el'tir þeim koma
skýrslur fastanefnda og fagdeilda. Listar eru birtir, bæði í skýrslu VFÍ og skýrslu TFÍ, yftr
alla fulltrúa í stjórnum, nefndum og ráðum hvors félags um sig og loks samstarfsnefndir fé-
laganna. í skýrslu VFÍ er að þessu sinni einnig birtur listi yfir heiðursfélaga VFÍ, en þeir eru
mtjan talsins, og listi yfir þá sem veilt hefur verið heiðursmerki félagsins, en þeir eru 57. í
skýrslu TFÍ eru taldir upp heiðursfélagar, en þeir eru aðeins fjórir.
1 skýrslu TFÍ er að ftnna skýrslur hagsmunafélaga TFÍ, en þau eru Lífeyrissjóður TFÍ,
Kjarafélag TFÍ og stjórnendur og sjálfstætt starfandi, STFÍ.
Skýrslu VFÍ fylgja skýrslur félaga sem eru tengd VFÍ, en þau eru Félag ráðgjafarverk-
fræðinga, Stéttarfélag verkfræðinga og Lífeyrissjóður verkfræðinga.
Sérstakir kaflar eru um nýja félagsmenn beggja félaga en félagsmálahlutinn endar á
lokaverkefnum nýútskrifaðra verkfræðinema og tæknifræðinema.
Ragimr Rcignarsson rit-
stjóri Árbókar VFÍ/TFI
1997/98