Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.1998, Side 13
Skýrsla formanns og framkvæmdastjórnar VFI 11
Stjórn VFÍ 1997-1998. Fremri röð frá vinstri: Sigurður Brynjólfsson meðstjómandi, Pétur
Stefánsson formaður og Hildur Ríkarðsdóttir varaformaður. Aftari röð frá vinstri: Logi
Kristjánsson framkvœmdastjóri, Eymundur Sigurðsson meðstjórnandi, Benedikt Hauksson
varameðstjómandi, Óskar Valdimarsson meðstjórnandi og Steinar Friðgeirsson varameðstjórn-
andi. (Ljósm. Jóhannes Long).
Aðalstjórn
I aðalstjórn áttu eftirfarandi menn sæti auk framkvæmdastjórnar: Torfi Sigurðsson, formaður
fiyggingarverkíræðideildar (BVFÍ), Þór Tómasson, formaður Efnaverkfræðingadeildar
(EVFÍ), Pétur Þórðarson, formaður Rafmagnsverkfræðingadeildar (RVFÍ), Hafliði Loftsson,
formaður Vélaverkfræðideildar (VVFÍ), Bergur Steingrímsson, formaður Norðurlands-
deildar (NVFÍ), Þórólfur Árnason, formaður Lífeyrissjóðs verkfræðinga (LVFÍ), Þorbergur
Karlsson, formaður Félags ráðgjafarverkfræðinga (FRV) og Þórir Guðmundsson, formaður
Stéttarfélags verkfræðinga (SV).
Á þessu ári voru haldnir þrír bókaðir aðalstjórnarfundir. Félagslegur skoðunarmaður VFÍ
er jafnan boðaður á aðalstjórnarfundi. Fyrsti aðalstjórnarfundurinn var haldinn 23. septem-
ber 1997. Að venju var verkefnaskrá vetrarins meginmál fundarins og samræming á dagsetn-
mgum fyrir ráðstefnur, skoðunarferðir og fundi. Formaður VFÍ ræddi um fasta þætti starf-
seminnar og kynnti lista yfir sérverkefni sem unnið væri að. Þar nefndi hann m.a. endur-
skoðun félagslaga VFÍ, nýtt upplýsingakerfi, samstarfsmál og stefnumótun, kynningarmál,
íélagafjölgun, meiri tengsl við landsbyggðina, orlofsmál og endurskipulagningu skrifstofu.
Aðrir formenn greindu frá því sem framundan væri í þeirra deildum, stjórnum eða nefndum.
Annar aðalstjórnarfundur var haldinn 3. febrúar 1998. Á fundinum var samþykkt ein-
roma að gera Sören Langvad að heiðursfélaga Verkfræðingafélags Islands og sæma þau Karl