Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.1998, Page 37
Skýrslur fastanefnda VFI 35
Siðanefnd starfsársins 1997-1998 hélt tvo fuiuli á árinu, en ekkert ntál hefur borist
nefndinni til umfjöllunar. Á fundunum var meðal annars rætt um að halda áfram að kynna
einstakar greinar siðareglna eins og gert hefur verið undanfarin ár með greinum í Verktækni.
Nefndarmenn skiptu með sér verkum að því er varðar framkvæmd þessa máls. Einnig var
rætt um möguleika siðanefndar á að hafa frumkvæði í málum sem nefndin telur rétt að vekja
athygli á.
Siðanefnd VFÍ
Þárarinn Magnússon formaður
Útflutningsnefnd VFÍ
Útflutningsnefnd Verkfræðingafélagsins skipuðu þeir Árni Björn Jónasson formaður, Svav-
ar Jónatansson varaforntaður, Sigþór Jóhannesson, Guðjón Aðalsteinsson, Jón Bergmunds-
son, Sveinbjörn Jónsson, Lárus Ásgeirsson og Baldur Hjaltason.
Nefndin tók við af fyrra árs nefnd í október 1997 og miðast starfið við að koma frekar á
framfæri skýrslu útflutningsnefndar Verklræðingafélags íslands og Endurskoðunarmið-
stöðvarinnar Coopers & Lybrand ehf. unt „Tillögur um breytingar á íslenskum skattalögum
til eflingar íslensks útflutnings“, sem var gefrn út í apríl 1997. Fyrrverandi formaður nefnd-
arinnar, Andrés Svanbjörnsson, og varaformaður, Svavar Jónatansson, báru hitann og þung-
ann af útgáfu skýrslunnar að öðrum nefndarmönnum ólöstuðum. Af hálfu C&L störfuðu þau
Helga Tanya Zharov og Ingvar Garðarsson með nefndinni og eru þeim þakkað sérstaklega
vel unnin störf.
í skýrslunni eru sjö tillögur um breytingar á skattalögum til eflingar íslensks útflutnings
og fjalla allar um hindranir í útrásarverkefnum. I lok apríl 1997 var haldinn hádegisverðar-
fundur fyrir félagsmenn Verkfræðingafélagsins þar sem efni skýrslunnar var kynnt. I maí og
júní 1997 voru fundir með Finni Ingólfssyni iðnaðar- og viðskiptaráðherra og Friðriki Soph-
ussyni fjármálaráðherra þar sem þeim var kynnt efni skýrslunnar og óskað eftir úrbótum á
skattalögum. Finnur tók mjög vel í efni skýrslunnar en Friðrik heldur dræntar. Skýrslan var
send víða af Verkfræðingafélagi og var einnig kynnt mörgum fyrirtækjum.
Þar sem ekkerl hafði þokast áfram haustið 1997 var boðað til lokaðs fundar á vegum Út-
flutningsráðs 7. desember 1997 og þangað komu stjórnendur og forsvarsmenn margra fyrir-
tækja og einnig ráðuneytisstjórar viðskipta-, utanríkis- og fjármálaráðuneytis. Allir lýstu
ánægju sinni með ábendingar skýrslunnar og töldu um þarfa umræðu að ræða. Helga Tanya
vann síðan að annarri skýrslu með Verslunarráði sem var tilbúin í febrúar 1998 og þar sem
margar af þeim tillögum sem eru í skýrslu útflutningsnefndar voru endurteknar og rök-
studdar enn frekar. Morgunverðarfundur Verslunarráðs fjallaði um þá skýrslu í lok febrúar
1998. Sama dag, 25. febrúar, fjallaði Morgunblaðið um þessi mál og hafði eftir fjármálaráð-
herra að ákveðnar breytingar myndu eiga sér stað á skattalögum í þessu sambandi. Útlit var
fyrir að tvö frumvörp yrðu lögð fram, eitt á vorþingi og annað á haustþingi. Ekki eru enn
fyrir hendi forntlegar upplýsingar um hvað verður nákvæmlega í þessum frumvörpum annað
en það sem stóð í Morgunblaðinu.
Starf útflutningsnefndar mun miðast við að koma sjónarmiðum í skýrslunni til yfirvalda
og er ærið starf þar óunnið. Að því er varðar aðrar áherslur er enn óráðið hvert kröftum skal
beint. Markast það frekar af þörf utan frá heldur en tilbúnum hugmyndum innan frá. Til