Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.1998, Page 94
92 Félagsmál VFÍ/TFI
framhaldi þeirrar stefnu skipaði menntamálaráðherra nefnd með fulltrúum VFÍ, TFÍ, HÍ, TÍ
og ráðuneytisins. Nefndin hefur fundað vikulega á annað ár, en því miður var ekki einhugur
innan hennar og skilaði hún ekki sameiginlegu áliti um nýja skipan tæknináms á háskólastigi.
í september 1997 skilaði nefndin miklum upplýsingum, meðal annars „Skýrslu formanns og
samantektum nefndarmanna". Nokkru síðar barst greinargerð Björns Kristinssonar, forseta
verkfræðideildar. Framkvæmdastjórn VFI og stjórn TFI skiluðu síðan tillögum til mennta-
málaráðherra um áframhaldandi vinnu við málið eftir að hafa fengið sameiginlegt álit
menntamálanefndar VFÍ og menntunarnefndar TFÍ og rætt við deildarráð verkfræðideildar.
Endurmenntunarmál verkfræðinga og tæknifræðinga: VFI og TFI skipuðu sameigin-
lega nefnd sem falið var að vinna tillögur að endurmenntunarmálum verkfræðinga og tækni-
fræðinga. Tillögur nefndarinnar voru samþykktar af stjórnum beggja félaga á árinu 1995
sem stefna beggja félaganna í endurmenntunarmálum tæknifræðinga og verkfræðinga.
Kjarni þeirrar stefnu er að tryggja að tæknimenn eigi kost á að stunda vel skipulagða
símenntun.
í samvinnu við SV var í framhaldi þessa stofnuð ný nefnd, endurmenntunar- og símennt-
unarnefnd VFÍ, TFÍ og SV eða ENSÍM-nefndin eins og hún er kölluð hér innanhúss. Nefnd
þessi hefur starfað ötullega. Hún hefur myndað smærri vinnuhópa til að kanna þörf fyrir
námskeið og endurmenntun innan hinna ýmsu fagsviða VFI og TFI og lagt á sig mikla við
að bjóða upp á námskeið sem best henta verkfræðingum og tæknifræðingum.
Þáttur VFÍ og TFÍ og aðild að starfi Endurmenntunarstofnunar HÍ gæti verið sýnilegri og
ætti að koma betur fram, t.d. í auglýsingum frá stofnuninni.
Það er ánægjulegt að segja frá því að félagsmenn VFI og VFÍ fá nú 15% afslátt af tækni-
námskeiðum sem þeir sækja og Endurmenntunarstofnun hefur haldið á starfsárinu átta nám-
skeið í Verkfræðingahúsi.
Útgáfumál: VFÍ, TFÍ og SV standa sameiginlega að útgáfu fréttablaðsins Verktækni. Blaðið
er gefið út u.þ.b. hálfsmánaðarlega yfir vetrartímann. Sigrún Hafstein kom aftur til starfa við
ritstjórn blaðsins sl. haust. Sú breyting varð á útgáfu blaðsins á haustmánuðum að gerður var
tilraunasamningur við Borgarprent um að fyrirtækið fengi allar auglýsingatekjur af blaðinu
gegn því að það tæki að sér prentvinnsluna. Ekki gekk áfallalaust að koma blaðinu út og
stóðust tímaáætlanir engan veginn, en hins vegar hefur fjöldi blaða og stærð þeirra verið í
aðalatriðum í samræmi við samning. Vegna hins mikla fjárhagslega ávinnings sem þetta
fyrirkomulag hefur í för með sér þótti rétt að láta betur á reyna og var gerður nýr skannn-
tímasamningur á sama grunni við MÍS, Merkjabankinn íslenska útgáfan ehf., um síðustu
áramót. Útgáfa blaðsins hefur verið í mun fastari skorðum það sem af er árinu 1998.
Eins og verið hefur undanfarin ár gáfu VFÍ og TFÍ út Árbók sem greinir frá félagsstarf-
inu og geymir tækniannál og framkvæmdasögu ársins auk vísindagreina, þar á meðal rit-
rýndar greinar. Bókin kom út í desemberbyrjun 1997 og er það í fyrsta skipti sem bókin
kemur út á sama almanaksári og hún nær til. Ragnar Ragnarsson var ritstjóri þessarar bókar
eins og árið áður. Útgáfa bókarinnar var félögunum mun ódýrari en árin áður vegna stórauk-
inna tekna. Samningur við Ragnar hefur verið gerður um útgáfu Árbókar nr. 10 fyrir árin
1997/1998.
Sjá nánar um útgáfumál í skýrslu útgáfunefndar VFI og TFI aftar í kaflanum.