Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.1998, Page 97
Sameiginlegur rekstur VFÍ/TFÍ 95
Skipuð var samstarfsnefnd með einum fulltrúa frá hverjum aðila til að skoða þessa hug-
mynd SV í þaula. Nefnd þessi hefur yfirfarið málið á mörgum fundum. Lokaskýrsla nefnd-
arinnar, „Aukin samvinna SV, TFI og VFI“, var lögð frarn í október 1997. Nokkru eftir að
nefndin hafði kynnt niðurstöður sínar fyrir stjórnum félaganna ræddu framkvæmdastjórar
félaganna framkvæmdaratriði skýrslunnar og skiluðu stjórnunum greinargerð urn rnálið 24.
nóvember 1997. Þrátt fyrir nokkuð skiptar skoðanir framkvæmdastjóranna á aukinni sam-
vinnu og forsendum hennar urðu þeir sammála urn að skoða nánar samrekstur á tækjabún-
aði (netþjóni, ljósritunarvél, prentara, faxbúnaði, frímerkjavél og símakerfi) og starfi eins
starfsmanns ásamt tækjum og aðstöðu fyrir hann. í því sambandi verði fleiri en einn rekstrar-
og uppgjörsmáti skoðaður.
Upplýsingakerfi: Félagaforriti, sem notast hefur verið við hjá VFÍ og TFÍ, voru aldrei ætl-
aðir langir lífdagar, en það hefur þó tórt síðan 1989. Upplýsingar sem forritið geyrnir eru
miklar og dýrmætar, en kerfið er þungt og gamalt og leyftr eingöngu einn notanda og garnal-
dags prentara. Stjórn VFI þótti ekki verjandi að búa ekki betur um hnútana og var tveimur
stjórnannönnum falið að kanna hvaða leiðir séu hagkvæmastar við gerð nýs forrits og hvernig
tengja megi það bókhaldi félagsins. Vinnuhópur á vegum VFI og TFI hafði komist að niður-
stöðu á miðju sl. ári um hvaða leið skyldi farin. Nokkru eftir að nýr framkvæmdastjóri kom
til statfa var hópurinn útvíkkaður og kom framkvæmdastjóri SV inn í þann hóp. Eftir ítar-
lega skoðun og verðkannanir var fyrri niðurstaða staðfest. Samhliða verðkönnunum vann
framkvæmdastjóri TFÍ/VFÍ að kröfulýsingu á félagakerfinu í samvinnu við vinnuhópinn og
starfsfólk skrifstofanna. í þeirri kröfulýsingu var ávallt gert ráð fyrir að félögin þrjú, sem
vildu auka samvinnu sína, ættu þar hlut að máli. Þegar fór að nálgast ákvörðunartöku kom í
Ijós að SV vildi ekki vera með í kaupunum að sinni. Stjórnir TFÍ og VFÍ ákváðu þó að ráð-
ast strax í kaupin en halda leiðum opnum til að SV geti komið til þessa samstarfs á næsta
eða þar næsta ári.
Eins og fram hefur komið voru urn áramótin stigin fyrstu skrefin til að koma upp nýju
upplýsingakerfi fyrir TFI og VFI. Þá var tekinn í notkun netþjónn ásamt BackOffices for
Srnall Business frá Microsoft. Auk þessa var sett upp ISDN-upphringisamband við Hring-
iðuna ehf. og um leið fengu allir starfsmenn TFf og VFÍ og ritstjóri Verktækni eigið tölvu-
póstfang og aðgang að Internetinu. Fest voru kaup á Navision Financial-fjárhags- og við-
skiptamannabókhaldi ásamt því af gerður hefur verið samningur við Streng hf. unt gerð
félagakerfis í Navision. Vinna við félagakerfið er hafin en stefnt er að því að tölvukerfin
verði komin í notkun eigi síðar en um næstu áramót.
Kynningarnefnd TFÍA/FÍ
Starf kynningarnefndar var með hefðbundnum hætti á starfsárinu og kom nefndin saman á
níu fundurn. Haldnir hafa verið fimm samlokufundir og jafnframt voru jólasveinunum gerð
skil á þemakvöldi í desember 1997. Mæting á fundi hefur verið góð. Nefndin hefur sem fyrr
lagt áherslu á að vekja athygli fjölmiðla á samlokufundunum og hefur það tekist þokkalega.
Kostnaður vegna starfa nefndarinnar er eingöngu vegna nokkurra skjáauglýsinga á samloku-
fundum.