Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.1998, Page 171
2.8 Útflutningur íslenskrar
verkfræðiþekkingar
Virkir
Starfsemi Virkis (Virkir Engineering Group hf.) var með svipuðu sniði á árinu 1997 eins og
árin á undan. Afram hefur verið unnið að innra skipulagi félagsins sem ætlað er að standa
undir starfinu á komandi árum. Hið opinbera hefur lagt niður hlutafélagið Orkint og heyrir
það nú sögunni til. Af þessu tilefni var nafni félagsins breytt og heitir það nú Virkir Engineer-
ing Group hf. í daglegu tali og í almennum samskiptum er notað heitið Virkir, en það nafn
bar félagið upphaflega, þegar það var stofnað 1969. Orkustofnun fer með hlut ríkisins í félag-
inu, þannig að jarðvísindamenn hennar taka þátt í starfi Virkis á sama hátt og áður.
Samþykktum félagsins hefur verið breytt og er nú möguleiki á verktöku, en reynsla und-
anfarinna ára hefur sýnt nauðsyn þess að geta boðið heildarlausnir. Þessi tilhögun hefur
sannað sig svo ekki verður um villst, eins og t.d. í Kína. Um leið hefur verið skapaður grund-
völlur fyrir verkfræðiráðgjafa að taka þátt í verkefnum á vegum Virkis, sem að einhverju
leyti fela í sér verktöku, en geta haldið urn leið stöðu sinni sem óháður ráðgjafi.
Helstu viðfangsefni Virkis voru eins og áður á sviði jarðhita. Tækniþekking og reynsla
félagsins er þó ekki einskorðuð við það svið og er áhugi á því að taka að sér verkefni á
öðrum sviðum einnig, helst til jafns við jarðhitann.
Verkefninu í Tanggu í Kína lauk að mestu leyti og er nú unnið að því að koma á fót nán-
ara samstarfi við heimamenn til þess að afla fleiri verkefna á þeirn slóðum. Gerður hefur
verið samningur um hagkvæmniathugun fyrir raforkuframleiðslu í Tengchong, en boranir
hófust þar snemma árs 1998. Þessi athugun er fjármögnuð af Virki ásamt styrk frá NEFCO.
Virkir bindur miklar vonir við markaðinn í Kína og eru möguleikarnir margvíslegir, en hafa
þarf þolinmæði til þess að koma ár sinni vel fyrir borð þar í landi.
A miðju ári 1997 komst á samband við aðila í Noregi um undirbúning að virkjun heits
vatns úr Norðursjó. Vatnið kemur upp með olíu og gasi og er ekkert nýtt nú. Seint á árinu
komst síðan á samningur við SINTEF í Þrándheimi um að Virkir kæmi inn í þessa athugun
sem sérfræðingar við nýtingu jarðhita.
Unnið var áfram að öflun verkefna í Austur-Evrópu og þar bar hvað hæst undirbúningur
að hitaveituverkefni fyrir borgina Kosice í Slóvakíu. Að þessum undirbúningi er unnið í
samvinnu við Slovgeoterm sem er að hluta í eigu Virkis. Ekki verður hjá því komist að Virkir
þurll að fjármagna þennan undirbúning, ef möguleiki á að vera á umtalsverðri þátttöku í
verkefninu, þegar það fer af stað fyrir alvöru.
Virkir hélt áfram vinnu við öflun verkefna á fjölmörgum öðrum stöðum, svo sem í
Kenya, Azoreyjum, Tyrklandi, Rússlandi (Kamtsjatka, Kólaskaga, Kyrgistan, Krímskaga)