Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.1998, Síða 175
Ýmsar stofnanir 173
Regluleg starfsemi Rb skiptist í rannsóknir, prófanir, vottanir, gæðaeftirlit og ráðgjöf.
Undir ráðgjöf fellur útgáfustarf við stofnunina. Við vottanir er sérstaklega haft í huga að
fyllsta hlutleysis sé gætt og er vottunarstarfsemi afmörkuð frá annarri starfsemi við stofn-
unina. A sviði prófana á stofnunin ágætt samstarf við Norðurlöndin innan Nordtest og
Evrópulöndin innan Eurolab. Rannsóknir eru u.þ.b. 30% starfseminnar. Á hverri deild eru
2-15 rannsóknaverkefni í gangi. Þau hafa flest hlutafjármögnun frá fyrirtækjum og/eða
stofnunum, en helstu styrktaraðilar rannsóknarverkefna við Rb eru Rannís, Hús-
næðisstofnun, Steinsteypunefnd, Vegagerðin og Reykjavíkurborg.
Á árinu var samstarf við Iðntæknistofnun aukið og gefa stofnanirnar nú út sameiginlegt
fréttabréf.
Landmælingar íslands
Landmælingar Islands urðu sjálfstæð stofnun árið 1956 og heyra undir umhverfisráðherra
samkvæmt lögum nr. 47/1990.
Yfirstjórn er í höndum forstjóra sem ráðherra skipar til fimm ára í senn. Stofnuninni er
skipt í þrjú aðalsvið: markaðssvið, stjórnsýslusvið og upplýsinga- og markaðssvið.
Framleiðslusvið sér um fjóra meginflokka verkefna: Landmælingar, fjarkönnun, kortagerð
og tölvumál. Innan þessara meginflokka falla meðal annars eftirtalin mál: Gerð leiðbeininga
og kortastaðla, landfræðilegar og staðfræðilegar grundvallarmælingar, loftmyndataka og
vinnsla, landgreining og landfræðileg upplýsingaskráning, örnefnaskráning, gerð nýrra
korta og endurskoðun eldri korta af landinu, stafræn úrvinnsla fjarkönnunargagna, stafræn
kortagerð og gagnavinnsla, gæðamál, ráðgjöf og rannsóknir.
Stjórnsýslusvið sér um fjármál, rekstrarmál og starfsmannamál. Starfsemin felur meðal
annars í sér fjárhags- og rekstraráætlanir, fjármál og bókhald, eignaumsýslu, ritvinnslu og
símaþjónustu, höfundarréttarmál, almenn innkaup og öryggiskerfi.
Upplýsinga- og markaðssvið sér um markaðs- og sölumál, safnamál og útgáfumál. Starf-
semin felur meðal annars í sér rekstur söludeildar, heildsöludreifingu korta, prentun og út-
gáfumál, markaðsstarfsemi og kynningar, varðveislumál og skráningu safna, notkunar- og
birtingarleyfi, gjaldskrá, vöruþróun og upplýsingamiðlun.