Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.1998, Page 262
260 Kynning stofnana og fyrirtækja
byggingarlögum sem þarfnast umfjöllunar í leiðbeiningum, s.s. framkvæmdaleyfi og skipu-
lag á bújörðum. Vinnsla við endurskoðun leiðbeiningarita um svæðisskipulag, aðalskipulag
og deiliskipulag eru í fullum gangi. Ennfremur hafa verið gefin út fimm leiðbeiningablöð
þar sem einstök atriði eru tekin fyrir og skýrð.
Reglugerðir um skipulags- og byggingarmál
Hér á eftir er fjallað stuttlega um nýjar reglugerðir, sem eru settar á grundvelli skipulags- og
byggingarlaga.
Skipulagsreglugerð: Samkvæmt 10. gr. skipulags- og byggingarlaga setur umhverfisráð-
herra reglugerð um gerð skipulagsáætlana að fengnum tillögum Skipulagsstofnunar og
umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga. Einnig kveður ráðherra nánar á um útgáfu fram-
kvæmdaleyfa í reglugerð, sbr. 27. gr. laganna. Ný skipulagsreglugerð var gefin út í júlí sl.
Byggingarreglugerð: Samkvæmt 37. gr. skipulags- og byggingarlaga setur umhverfisráð-
herra byggingarreglugerð í samráði við Skipulagsstofnun. Samstarfshópur skipaður full-
trúurn Skipulags ríkisins/Skipulagsstofnunar, umhverfisráðuneytis, Brunamálastofnunar,
Félags byggingarfulltrúa, Rannsóknarstofnunar byggingariðnaðarins og Sambands íslenskra
sveitarfélaga vann drög að nýni byggingarreglugerð, sem var gefin út í júlí sl.
Reglugerð um úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála: Samkvæmt 8. gr. skipu-
lags- og byggingarlaga setur umhverfisráðherra reglugerð um úrskurðarnefnd skipulags- og
byggingarmála. Reglugerðin var gelin út í desember 1997.
Reglugerð um landeignaskrá: Samkvæmt 29. gr. skipulags- og byggingarlaga setur um-
hverfisráðherra reglugerð um skráningu lóða og fasteigna og gerð og frágang landeignaskrár
að fenginni tillögu Skipulagsstofnunar og að höfðu samráði við dómsmálaráðuneytið, Fast-
eignamat ríkisins, Samband íslenskra sveitarfélaga og Hagstofu íslands. Unnið er að drögum
að reglugerð.
Reglugerð um skipulagsgjald: Samkvæmt 35. gr. skipulags- og byggingarlaga setur
umhverfisráðherra reglugerð um álagningu, innheimtu og ráðstöfun skipulagsgjalds. Reglu-
gerðin tók gildi í desember 1997.
Reglugerð um störf prófnefndar mannvirkjahönnuða: Samkvæmt 48. gr. skipulags- og
byggingarlaga setur umhverfisráðherra reglugerð um framkvæmd námskeiðahalds og prófs
vegna löggildingar hönnuða. Reglugerðin tók gildi í desember 1997.
Mat á umhverfisáhrifum, MÁU
Mat á umhverfisáhrifum (MÁU) (e. environmental impact assessment, EIA) rekur upphaf
sitt til lagasetningar í Bandaríkjunum fyrir nærri þremur áratugum. Síðan þá hefur mat á
umhverfisáhrifum verið innleitt víða um heim. Tilskipun Evrópusambandsins um MÁU árið
1985 hafði mikil áhrif á þróun þessara mála í Evrópu.