Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.1998, Page 371
5.6
Eiríkur Kristján Þorbjörnsson,
framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar hf.
Neyðarlínan 1-1-2
— eitt númer allt landið
Forsagan
Um árabil hefur verið unnið að því að koma
á sameiginlegu neyðarnúmeri fyrir landið
allt. Lokakafli undirbúningsins hófs með
skipan nefndar á vegum dómsmálaráðherra
í aprfl 1993 og í beinu framhaldi af starfi
nefndarinnar var sarnið lagafrumvarp um
samræmda neyðarsímsvörun sem varð að
lögum í mars 1995. Lögin heimiluðu dóms-
málaráðherra að semja við opinberar
stofnanir, sveitarfélög og einkaaðila um
fyrirkomulag, fjármögnun og þátttöku í
restri neyðarvaktstöðvar. Samstarfsútboð
fór fram á vegum Ríkiskaupa í mars 1995
og var gengið til samninga við Neyðarlín-
una hf. í október sama ár, en fyrirtækið var
stofnað í kringum samstarfshóp sem boðið
hafði í verkefnið. Samningurinn við dómsmálaráðuneytið er til átta ára og gerir ráð fyrir að
eigendur fyrirtækisins leggi fram rekstrarfé, um 300 milljónir króna á samningstímanum, á
móti álíka háu rekstrarframlagi ríkis.
Eigendur Neyðarlínunnar hf eru sex: Landssíminn hf., Slysavarnafélag íslands, Reykja-
víkurborg fyrir Slökkviliðið í Reykjavík, Securitas ehf., Vari ehf. og embætti ríkislögreglu-
stjóra.
Eiríkur Kristján Þorbjörnsson lauk prófi í
rafmagnstœknifrœði með sérsviði í tölvustýr-
ingumfrá Odense Teknikum 1980. Hann hef-
ur starfað við sjálfstæðan atvinnurekstur,
m.a. við Tölvuskólann Framsýn, hjá Tœkni-
vali hf. og Danco hf. Hann var framkvœmda-
stjóri Sambands íslenskra rafveitna (SIR)
1987-1995 og hefur ver-
ið framkvœmdastjóri
Neyðarlínunnar hf. frá
1995. Eiríkur hefur tekið
þátt í ýmsum félags- og
stjórnunarstörfum, var
m.a. formaður TFl
1991-1993.
Eitt númer — allt landið
Ástæða þess að ákveðið var að samræma þau 150 neyðarnúmer sem fyrir voru í landinu var
m.a. að Evrópulöndin ákváðu að samræmt neyðarnúmer, 1-1-2, skyldi vera í öllum löndum
álfunnar. Þá má ljóst vera að með einu neyðarnúmeri er fólki sem lendir í neyð og þarf á að-
stoð neyðarsveitar að halda, þ.e. lögreglu, slökkviliðs, sjúkraflutningaliðs eða læknis að